Miðvikudagur, 17. maí 2006
Spurning: "Ertu fullur?"
Svar: "Ég er í Cannes."
Það vantar ekki stuðið hérna frekar en fyrri daginn. Ætli það sé nokkuð betra en að sitja á stuttermabol úti undir berum himni fram eftir nóttu og drekka G&T? Don´t think so.
Á enn eftir að fara í partí í garðinum á Le Grand Hotel. Þeir eru ólíkir Grandararnir í Reykjavík og Cannes en ég kann álíka vel við mig á báðum stöðum. Svo á ég líka eftir að fá mér súpuna með Mike Kannanack á tælenska staðnum. Það er á to do listanum ásamt viðtali við Almodovar, Richard Linklater, Ethan Hawke og einhverja fleiri.
Það er vissulega skarð fyrir skildi þar sem Einar Logi og event liðið hans Ísa, með hann sjálfan í fylkingarbrjósti, Jón Þór og Anna Marín eru ekki hérna í ár en Skarpi, Dóri, Ofur Hugi og Auddi eru búnir að ná að fylla það vel. Drekk samt amk einn "baby vodka" á Grand í kvöld í minningu þeirra. Here´s looking at you kids!
Við höfum auðvitað verið slatta á Le Petit Majestic (Ölstofunni í Cannes) og tókum hressilega á því í gær. Stærsta heimspekilega spurningin sem ég glímdi við var sú hvort maður væri tilbúnn til að annað hvort fróa Vidda í Greifunum eða láta hann fróa sér gegn því að fá að ríða Angelinu Jolie og Monicu Bellucci. Væri svarið "já" kom framhaldsspurningin "hvort myndirðu gera fyrst?" Áhugaverðar pælingar sem spruttu upp úr þessu. Svo var sagður ljótur brandari sem sló í gegn:
Hér er staur
en það er allt í lagi ég keyri bara á hann því ég er
he-he-he-hermaur.
Það var dúfa að fljúga hérna inn og brjóta spegil og lampa. Það verður án efa skrifað á fyllerísrugl. Talandi um slíkt þá hélt ég alltaf að mitt stærsta afrek væri þegar mér var hent út af grænlenskum bar en í gær var mér vísað út úr spilavíti í Cannes. How cool is that? Þó hér séu samankomnar alls konar Hollywoodstjörnur virðist Cannes ekki rúma Ofur Huga og The Lizard King on a winning streak. Vorum samt ekki með nein læti vildum bara ekki fara þegar öryggisvörðurinn með CIA júnitið í eyranu vildi loka.
Já, og bara svona for the record þá er Monica Bellucci fallegasta kona í heimi. Nú er hún með slegið hár og þetta seiðandi blik í augunum. Angelina fölnar í samanburðinum.
Nennesseggi. Ætla að leigja mér Porsche og bruna til Monte Carlo. Tekur innan við klukkutíma.
| 18:08 |