Laugardagur, 27. maí 2006
Það er eitthvað svaka fansí smansí Kók(aín)partí í Iðuhúsinu í kvöld. Uppskrúfaður gleðskapur ríka og fræga fólksins með svörtu þema sem þýðir samkvæmt Hér&Nú að sápurnar á klósettinu verða svartar sem og kertin sem lýsa staðinn upp. Boðsgestir hafa að sögn allir fengið kristal og sá sem hefur ekki svoleiðis meðferðis fær ekki að komast inn í dýrðina. Slúðurblaðið heldur því fram að þetta sé partí ársins og allir boðsgestir séu því voða töff. Þar sem ég sá nafn mitt á gestalistanum leyfi ég mér að draga þessa fullyrðingu stórlega í efa og ætla eins og Dr. Gunni að vera fúli gaurinn, afþakka þessa skyndilegu upphefð og mæta ekki.
Þegar ég kom frá Cannes lá einhver kristalskubbur á skrifborðinu mínu. Vissi ekkert hvað þetta átti að fyrirstilla og náði ekki að tengja fyrr en ég sá gestalistann birtan í H&N. Varð þá hugsað til Groucho Marx sem sagði einu sinni I do not care to belong to a club that accepts people like me as members.
Mér verður oftast óglatt af fjöldasamkomum að ég tali ekki um samkomur sem þessar þar sem allir viðstaddir halda að þeir séu eitthvað þó þeir komist ekki hjá því að skíta reglulega eins og pakkið í Árbænum. Það er samt soldið freistandi að fara með kristalinn niðureftir og selja hann við innganginn. Það er örugglega slatti af wannabeum sem fengu ekki boð og myndu borga vel fyrir að fá að tjútta innan um uppaskrílinn.
Því er sem sagt hér með komið á framfæri að ég er með kristal til sölu. Uppboðið byrjar í 10.000. Áhugasamir geta boðið í miðann á kommentunum.
| 17:17 |