Fimmtudagur, 18. maí 2006
Yay though I walk through the valley of evil, I will fear no death. Cuz I'm the meanest motherfucker in the valley
Lizard King tók Cannes með full force í gær. Ég verð alltaf hálf hissa þegar ég vakna lifandi eftir nætur þar sem alteregóið tekur völdin. Veit ekki alveg hvort arabinn vinur minn, sem ég hitti í nóttinni, ætlaði að ræna mér, nauðga eða drepa og mun aldrei komast að því þar sem honum var vísað út af síðasta opna barnum í bænum. Þar sátu þrír chauffeurar sem eru soldið í því að rúnta með fræga fólkið. Eigandi staðarins, sem var aldrei kallaður annað en "Boss", drakk þeim til samlætis. Ágætis kall en bullandi rasisti. Hann spurði hvaðan ég kæmi og var alveg að fíla Islandia en við arabann sagði hann bara "út með þig ég vil ekki sjá þig hérna" síðan sagði hann mér að taka þetta ekki næri mér það væri bara hans vandamál að hann hugsaði svona. Það er greinilega ekkert uncool að vera Íslendingur hérna þar sem Boss neitaði að taka við greiðslu fyrir drykkina og dældi í mig filterslausum frönskum sígarettum.

Dræverarnir voru helvíti svalir. Sérstaklega aðalgaurinn, sá elsti og reyndasti sem hinir mændu á. Töff gaur með Jason Statham look og leit alveg út fyrir að geta myrt mann við réttar aðstæður. Það skemmtilegasta sem maður gerir hérna er að þræða öngstrætin og tjatta við lókalliðið. Driverarnir eru grimmir husslerar með ítölsku yfirbragði en keyra alltaf á löglegum hraða vegna þess að missi þeir prófið eru þeir búnir að vera og verða að fara aftur í verksmiðjuna.
Tók vakningu á Strákana þegar ég skreið heim. Það átti að koma rosalega vel á vonda en það er ekkert gaman að vekja menn sem sofa eins og grjót þó maður stökkvi upp í til þeirra með öskrum. Gaurarnir í næsta herbergi vöknuðu hins vegar. Almættið launaði mér svo ótuktarskapinn með því að senda mér þrjá engla í dag.
Meira um englana hér
| 18:02 |