Mánudagur, 22. maí 2006
Það blasti við okkur á skjánum á flugvellinum í Nice að vélin okkar væri þroskaheft og Sterling tókst að tefja flugið til Köben um tvo tíma þannig að þegar við lentum þar horfðum við á eftir Flugleiðavélinni heim í loftið. Bloddy annoying. Er stuck i Kaupmannahöfn og er ekkert að fíla það sérstaklega. Þetta er svo sem ekkert skítapleis en ekkert Cannes heldur, ekkert frekar en Reykjavík. Er of þreyttur til að drekka bjór sem mér skylst að sé helsta iðja hérlendra.