Miðvikudagur, 21. júní 2006
Kópavogsdissið mitt um daginn fór eitthvað illa í fólk. Eingöngu Kópavogsbúa, vitaskuld. Held hreinlega að allir Kópavogsbúar sem ég þekki, fyrir utan pabba og Kópavogsbúa sem hafa þekkt mig í gegnum árin, séu búnir að fara á límingunum og lýsa yfir andúð sinni á einhvern hátt. Best þykir mér samt að margir telja þetta einhverja nýja grillu hjá mér. Sem er galið vegna þess að ég hef haft andstyggð á sveitarfélaginu í ein 29 ár eða frá því ég flutti þangað sex ára gamall. Gerði handahófskennda leit hér á síðunni og fann til dæmis þessa færslu frá árinu 2003. Þar segir meðal annars:
Sjálfur bjó ég í Kópavogi í tæp 10 ár og tel ekki á neitt skítapleis í landinu hallað þó fullyrt sé að Kópavogur sé eitt það ömurlegasta bæli á þessu morkna landi. Kópavogur hafði þarna gullið tækifæri til þess að hefja sig yfir pervisinn Reykjavíkurlistann og gera bæinn að hálfgildings heimsborg með því að leyfa lappdans í skuggalegu iðnaðrhverfinu. Sá draumur er úti.
Þetta er nánast nákvæmlega eins orðað og nýja dissið sem allt of margir hafa kosið að taka persónulega. Gunnar Birgisson veit nefnilega ekki neitt og það er vont að búa í Kópavogi og enn verra að fá leigubíl til þess að komast þaðan á virkum nóttum.
Hvað getur maður sagt annað en flytjið eitthvað annað?
Já, og fyrst ég er farinn að leiðrétta þá finnst mér alveg galið að einhver önnur Anna en anna.is leyfi sér að kommennta hér undir nikkinu "anna". As far as I´m concerned er aðeins ein "anna" á internetinu og það er hún. Ætlaði líka ekki að trúa því að fyrrverandi eiginkona mín væri farin að væna mig um að eltast við vændiskonur í útlöndum. Hundskammaði hana á MSN og varð eins og auli þegar hún benti mér á að smella á linkinn undir signatúrinu. Say no more.
| 19:38 |