»  off record  »  Andalúsíuhundurinn
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Andalúsíuhundurinn
Laugardagur, 24. júní 2006

Talandi um fólk þá sagði G.B. Shaw einhverju sinni að eftir því sem hann kynntist því betur þætti honum vænna um hundinn sinn. Það er eins fyrir mér komið af sömu ástæðu og ég tengist því Húgó sterkari böndum með hverjum degi.

Fór út að viðra dýrið áðan og gekk bara assgoti vel að hafa taumhald á þessari kolsvörtu, tannhvössu 34 kílóa skepnu, þangað til á heimleiðinni. Húgó leiðast nefnilega aðrir hundar og börn. Hann tók nett kast á ferfættan frænda sinn sem sturlaðist líka og í framhaldinu glefsaði hann í áttina að strákkling. Pabbi drengsins fríkaði út, kyrrsetti mig og gargaði á viðstadda að kalla til lögregluna. Fair enough og nothing to be done.

Löggan hérna er ekki sú viðbragðsfljótasta í heimi svo ég fékk mér sígó á meðan við biðum. Spánverjinn var enn loco og jós yfir mig skömmum og svívirðingum (geri ég ráð fyrir). Vont að tækla þetta blóðheita lið þegar maður kann ekki rassgat í tungumálinu. Reyndi að halda kúlinu og sýna að það rynni krap um æðar mínar en reykti samt 4 rettur áður en hann gafst upp á að bíða eftir löggunni og sleppti okkur Húgó með aðvörun.

Reykti þetta samt ekki allt af hreinni nautn þar sem ég var skíthræddur um að Guardia Civil myndu mæta í stað local löggunnar en þá hefði Húgó sennilega verið skotinn á staðnum og ég barinn til ólífis.


| 22:06 |
komment

If you need a friend, buy a dog - GG "Wall Street" (1987).
Hundurinn ber líklega ekki virðingu fyrir þér ef hann lætur svona. Þú verður að láta hann vita hver er húsbóndinn. Hundar eru hópdýr og þú ert foringinn af því að þú kannt að opna ísskápinn.

Nr. 1 | Gordon Gekko | 25.06.2006 | 8:13:56 | [+] |

Húgó er ekki hundurinn minn og þess vegna lem ég hann ekki. Kannski verður það til þess að hann mun aldrei virða mig en þegar ég held á skinkuni og harðfisknum er hann minn. ERGO: Hundar eru fólk nema bara þeir tala ekki og eru lausir við fals. Greed is good. True, en annars var Gekko helvítis fífl enda kom hann að kanínunni soðinni í eldhúsinu heima hjá sér.

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 26.06.2006 | 1:32:08 | [+] |

Svei mér þá ef ég fer ekki að hafa áhyggjur af þér, minn kæri vin, þarna í Spáníá. Ef ég man þetta rétt eru hin fleygu ummæli um hundinn og mannkynið eignuð Friðriki mikla Prússakóngi, sem mun hafa sagt: "Því betur sem ég kynnist mönnunum þeim mun vænna þykir mér um hundinn minn."

Og var það ekki í Fatal Attraction þar sem kanínan var soðin en ekki í Wall Street? Ekki að ég ætli mér þá dul að fara að skóla kvikmyndabuffið þig. En ef rétt reynist þá er rétt að skoða sinn gang þegar komnir eru í einn graut karakterarnir Gekko, Dan Gallagher og svo leikarinn Michael Douglas.

Nr. 3 | Jakob Bjarnar | 26.06.2006 | 9:52:25 | [+] |

Full ástæða til að hafa áhyggjur minn kæri. Hér eru öll mörk mjög óljós og þetta leysist allt upp í einn graut, mauksoðinn með kanínukjöti.

Nr. 4 | Tóti sjálfur | 26.06.2006 | 9:57:31 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff