»  off record  »  Ballans
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Ballans
Föstudagur, 16. júní 2006

Náttúran leitar alltaf jafnvægis þannig að eftir 37 stiga hita og þrúgandi raka í dag þykknaði upp á augabragði í kvöld með þrumum, eldingum, hálfgerðum hvirfilbyl og hitabeltisrigningu. Þetta gerðist á split second og bjórdósin mín og sígarettupakkinn fuku út í eilífina án þess að ég fengi rönd við reist enda hugfanginn af þeirri stórfenglegu sjón sem blasti við mér frá veröndinni þegar hafið trylltist í látunum og steig á land ef ekki til himins hreinlega.

Lífið er háð þessum sömu lögmálum um jafnvægi. Þar skiptast á skin og skúrir og eftir ládauð tímabil skella á átakatímar og svo dettur allt í dúnalogn aftur. Rétt eins og á veröndinni áðan er meiri dramatík og stuð í storminum og maður á það því til að kjósa stríð frekar en frið. Þar liggur kannski grundvallarmunurinn; í náttúrunni skellur fárviðrið óhjákvæmilega á en í lífinu stjórnar maður þessu sjálfur og kallar ósköpin yfir sig eins sýrður seiðkarl sem stígur regndans.

Eftir að hafa staðið heillaður í fárinu þar sem lausamunir fóru á flug og fuglar þeyttust um himinhvolfið eins og jarðarber í blender hraktist ég inn og horfði á nautaat í sjónvarpinu. Það er nú ekki mikið jafnvægi í hringnum þar sem eitthvert lið stingur sex spjótum í Toro og þreytir hann svo skrautklæddur spjátrungurinn geti að lokum ögrað nautinu með rauðu dulunni áður en hann fær sérvalinn korðann sem hann rekur á kaf ofan í hnakkadrambið á skepnunni. Það tekur nautið einhverjar sekúndur ef ekki mínútur að deyja. Óþægileg augnablik fannst mér en múgurinn fagnaði ákaft.

Móli líffræðikennari í MK sagði einhverju sinni að það væri ekkert ljótt við það í náttúrunni að einn dræpi annan. Náttúrulögmálin eru víðs fjarri á þessum leikvangi en ég held samt að það hafi verið logn í augum nautsins síðustu augnablikin. Þegar að því kemur og maður veit að það er ekkert eftir annað en að detta niður dauður hlýtur maður að fyllast ró. Nothing to be done.


| 0:54 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff