Mánudagur, 19. júní 2006
Fermingarveislan var haldin á 5 stjörnu hóteli í Valencia. Ársaðild að golfklúbbnum þar kostar tæpar fimm milljónir íkr og SPA-ið er svo eðal að spænska landsliðið var látið tjilla þar í viku áður en það fór á HM.
Það hefði samt mátt plokka eina stjörnuna af hótelinu þar sem reykingar voru bannaðar í veislusalnum. Það kom þó ekki að sök þar sem séraprestur var á staðnum. Rakst á hann reykjandi úti í horni þegar ég ætlaði út að smóka í sólinni. Þar sem presturinn reykir þar má ég reykja. Segir sig sjálft. Séraprestur sagði að boðorðin 10 væru það eina sem væri í gildi. "Allt annað er bull og það stendur hvergi í þeim að ég megi ekki reykja."
Séraprestur gefur því ekki mikið fyrir lög um bann við reykingum á veitingastöðum, frekar en aðrir Spánverjar, og segir einfaldlega að "þeir geta dælt öllu þessu bulli sínu út úr þinginu en þau lög gilda ekki. Það eru bara boðorðin 10."
Annars tækluðu Spánverjar reykingalögin mjög smekklega. Það var auðvitað allt brjálað þegar setja átti þessi ólög og mótmælin voru kröftug að hætti siðmenntaðra Evrópuþjóða. Þrautalendingin var því að leyfa veitingamönnum sem vilja leyfa gestum sínum að reykja að hengja upp skilti við dyrnar: HÉR MÁ REYKJA.
Reykleysingjar hafa þá verið warned og geta valið um að vera heima hjá sér eða fara annað. Þar fyrir utan er auðvitað galið að setja svona lög í landi þar sem allir reykja.
Aftur að prestinum. Mikill töffari og Alberto segir að hann minni sig alltaf á bíómyndina K-PAX þegar hann sér hann með sólgleraugun. Séraprestur tók vel á því í mat og drykk. Svalt að ferma börnin og mæta svo og mökka sig í veislunni. Þessi ferming var eins og besta brúðkaup á íslenskan mælikvarða og það voru allir hellaðir en þó engir eins og séraprestur, Íslendingurinn og Alberto. Fjörið var svo mikið að tertan gleymdist og veislan var að fjara út þegar þjónn kom í öngum sínum að minna á hana. "Tarta, tarta!" og svo var henni skolað niður með öllum heimsins líkjörum.
| 12:17 |