»  off record  »  Cuba Libre!
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Cuba Libre!
Föstudagur, 30. júní 2006

Frelsun Kúbu gengur vel enda eru gerð nokkur áhlaup á hverju kvöldi. Brugal er aðal leynivopnið þar sem enginn barþjónn með snefil af sjálfsvirðingu tekur það í mál að blanda drykkinn með Bacardi.

Bacardi, Kók og sítróna er romm í Kók.

Brugal, Kók, kreistur sítrónusafi og ein sneið er Cuba Libre.

Sjússamælar virðast ekki fyrirfinnast á Spáni þannig að við erum að tala um hardcore blöndu í hlutföllunum 25/75.

Talandi um frelsisstríð þá er Írinn Paul ekkert of hress með Breta þó hann hafi búið hjá gömlu nýlenduherrunum í rúman áratug. Ég reyndi að kenna honum einu réttu leiðina til þess að brjótast undan oki herraþjóðar (the Icelandic way). Tuðaðu þig til sjálfstæðis án þess að úthella einum blóðdropa. Safnaðu svo fullt af peningum og keyptu upp allt sem skiptir máli í landi gömlu kúgarana.

Paul var alveg að fíla þetta og skyldi vel að Danir væru ekki hressir en ég benti honum samt á að Írar yrðu að bregðast hratt við vegna þess að mínir menn væru líka komnir langt með að kaupa upp breska heimsveldið.

Skál fyrir Fidel!


| 11:46 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff