»  off record  »  Döbb
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Döbb
Fimmtudagur, 22. júní 2006

Bíóskorturinn hérna er að gera út af við mig en það er tómt mál að tala um það að skella sér í bíó á Spáni þar sem hér er allt döbbað. Spánverjarnir taka döbbið mjög hátíðlega og leikararnir sem gjamma ofan í Hollywoodstjörnurnar ná oftast röddum hinna fullkomnu frummynda lygilega vel. Mel Gibson var td fjandi brattur á spænsku í Lethal Weapon II í sjónvarpinu um daginn.

Spænskir leikarar sérhæfa sig í ákveðnum stjörnum. Góðvinur Albertos er spænski Bruce Willis. Hann talar líka fyrir Anthony Hopkins. Þetta hefur sloppið hingað til en Alberto sér fram á krísu fari svo að Hopkins og Willis muni leika í sömu mynd. Spánverjarnir eru svo skilyrtir í döbbinu að þegar vinur Albertos pantar sér cerveza á barnum snúast allir við: "Hey, þetta er Bruce Willis!"

Alberto þurfti mikið að ræða bíómyndir í fermingunni og var helvíti ánægður með mig þegar ég sagði honum að uppáhalds Almodovarmyndin mín væri ATAME! Sammála þar. Liðið við borðið var sannfært um að blaðamaðurinn, bóka- og bíórýnirinn frá Íslandi væri very important í heimalandinu. Leyfði þeim að lifa í þeirri blekkingu (þó glansinn hafi aðeins farið af þegar ég fræddi þau um að á skerinu byggju aðeins 300.000 hræður) og þurfti fyrir vikið að tala um bíó og bækur í nokkra klukkutíma og svara endalausum spurningum um hvernig mér þætti þessi myndin og hin myndin. Liðið var ekki alveg með á nótunum í Da Vinci dissinu nema þá helst Séraprestur.


| 9:29 |
komment

Já, þetta getur verið snúið að finna kvikmyndahús sem sýna ó textaðar myndir á Spáni, þó minnir mig að þú getir flet í staðarblaðinu og fundið myndir merktar VO eða VOS sem stendur fyrir version original eða eitthvað í þá áttina og þá eru þær sýndar með enskum texta. Svona mæli ég eindregið með Carlos I brandý sem er eðaldrykkur til þess að skola niður með kaffinu á barnum:-)

Nr. 1 | Simmi | 23.06.2006 | 1:18:22 | [+] |

VO myndir eru heldur af skornum skammti. Held að Da Vinci Code sé sú eina þessa dagana. Spurning að tékka á henni hún getur ekki versnað við það að vera á spænsku. Eitthver mæjorkískt brandí drakk ég áðan. Veit ekki hvað það hét en gott var það.

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 23.06.2006 | 21:26:45 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff