Föstudagur, 30. júní 2006
Ætli maður neyðist ekki til að halda með Argentínu í leiknum á eftir þó ég sé langt því frá búinn að fyrirgefa Argentínumönnum árásina á Falklandseyjar, handar guðs stöntið hans Diegos og önnur skítleg uppátæki. Það er þó ekki hægt að kenna þjóðinni og landsliðinu um stríðið frekar en öll mannshvörfin, pyntingarnar og morðin á saklausum borgurum sem framin voru á meðan herforingjastjórn skítalabbans Leopoldo Fortunato Galtieri Castelli var við völd.
So Argentina it is. Fyrir Evitu, Barböru á Casino og argentísku stelpurnar á Hogans. Þetta er illskárri kostur en þessir mekkanísku Þjóðverjar sem éta helst bara kartöflur hérna og prútta um verðið á Kókinu á fínum veitingastöðum. Þessi þjóð er gjörsamlega laus við allan stíl.
Þar fyrir utan leiðist mér alltaf þessi Karl-Heinz Rumennigge (vona að hann verði hafður á bekknum í dag) auk þess sem það er enn full ástæða til að erfa það við hrokafulla þýska markvörðinn Schumacher (afi formúluökuþóranna ef ég man rétt)að hafa á árum áður sparkað heilum tanngarði úr ólánssömum sóknarmanni, senda hann um leið í coma og djóka svo með allt saman.
| 11:55 |