Ætti ég að raða bókunum mínum eftir stafrófsröð, stærð eða innihaldi? Hvernig ætli þetta Dewey kerfi virki annars?
Mæli ekki með Dewey fyrir persónulegt safn. Gætir prufað Colon, LoC, sænska kerfið, Cutter eða UDC.
Raðaðu þeim eftir lit.
Það gerir mann geðveikan að ætla að raða bókum eftir einu kerfi. Best að tvinna saman stærð og efni.
Stærð! Það kerfi viðgengst í stofunni hjá mér og virkar alveg ótrúlega vel. Plássið nýtist best þannig, "réttur" staður fyrir hverja bók verður næstum augljós og svo er alveg ótrúlegt hvað maður man vel stærð bóka.
Már er með þetta á hreinu og færir fullkomin rök fyrir því að ég haldi mig við gamla kerfið. Er líka litblindur þannig að Palli er úti á túni.