»  off record  »  Hverjum klukkan glymur
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Hverjum klukkan glymur
Föstudagur, 23. júní 2006

Þegar Alberto er ekki að gera grín að húðlit mínum með því að kalla mig Toti blanco kallar hann mig Hemingway. Allt í lagi pæling hjá honum svosem þó mér finnist sá símskeytastílisti ekkert spes.

En ég er blaðamaður á Spáni, að reyna að skrifa á milli þess sem ég hangi á krám og grilla mig í sólinni. Ég er líka living on the edge of the night og horfi á nautaat (í sjónvarpinu að vísu) og er yfirleitt að íhuga sjálfsmorð. Og svo notum við báðir Moleskine.

Sé mig samt ekki alveg skjóta af mér hausinn. Fyrst og fremst vegna takmarkaðs aðgengis að skotvopnum (sem betur fer enda myndi ég þá líklega skjóta ansi marga aðra en sjálfan mig) en þar fyrir utan er önnur leið sem heillar meira. Því er nefnilega þannig farið að þegar ég er úti á svölum, hátt uppi, í útlöndum grípur mig óstjórnleg löngun til að stökkva. Fann fyrst fyrir þessu í Cannes 2005, aftur í ár og nokkrum sinnum á dag núna þar sem ég bý á 6. hæð.

En Hemingway er ekki minn maður þar sem Marlowe fílaði hann ekki. Í The Little Sister kallaði Phil leiðinlega löggu sem stundaði það að slá hann í tíma og ótíma "Hemingway". Hvers vegna? "Hann er maður sem sagði sömu vitleysuna svo oft að fólk fór að halda að hann væri rithöfundur."

Það flottasta við Hemingway er tvímælalaust það að hann hafði guts til að drepa sig. Það flottasta við Marlowe er allt.


| 21:31 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff