»  off record  »  If you wanna hang out...
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
If you wanna hang out...
Föstudagur, 09. júní 2006

Mér leiðast dópistar. Sérstaklega þegar þeir hringja í mig útúrkókaðir um miðjar nætur. Einn slíkur vakti mig klukkan rúmlega 4 í nótt til þess að segja mér að ef ég hætti ekki að drekka þá muni ég missa allt sem ég á og deyja. Það stoðaði lítt að reyna að benda honum á að spítt væri banvænna fíkniefni en rauðvín og að hann myndi drepast löngu á undan mér og væri andskotans nær að fara með úrsérgengna AA romsuna yfir sjálfum sér.

Ég hét ýmist Jón, Bjarni eða Tóti á meðan þetta alltof langa samtal stóð yfir en nafnaruglingurinn breytti því ekki að ég var alltaf jafn feigur. Það er samt vissulega tími til kominn að hætta að drekka eina ferðina enn. Þetta er búið að vera ágætt partí en er orðið leiðinlegt og það fer allur sjarmi af áfengisneyslu þegar hún er orðin kvöð. Ég þarf samt einhverjar betri og haldbærari ástæður en hræðslu við dauðann.


| 14:31 |
komment

Var þetta Ágúst Borgþór í símanum?

Nr. 1 | Finnur | 9.06.2006 | 15:30:18 | [+] |

toucé

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 9.06.2006 | 16:05:28 | [+] |

O jæja... náði þó einum áður ;o)

Nr. 3 | dis | 9.06.2006 | 16:28:05 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff