Islandia vs. Argentina
Fimmtudagur, 22. júní 2006
Leigubílstjórinn, sem er í mínu liði, pikkaði mig upp í nótt. Vildi keyra mig heim. Kom ekki til greina. Skipaði honum að aka mér á næsta stað sem selur áfengi. Þetta var um svipað leyti og haninn byrjaði að gala þannig að mister cab driver vildi koma mér í koju. Hélt því fram að ég væri búinn að drekka nóg. "Ég er ekki orðinn loco" var svarið og hann hristi bara hausinn. "Þið Íslendingar eruð LOCO".
Endaði á hamborgarabúlluni á horninu þar sem Argentínumaður þreyttist ekki á að bögga mig. Gat ekki skilið að Islandia væri ekki Írland þannig að hann fékk þessa ræðu:
Haltu kjafti helvítis bláröndótta fíflið þitt og ekki halda að þú sért eitthvað þó þú sért með 10 á bakinu. Taktu hönd guðs og troddu henni upp í rassgatið á þér. Veistu afhverju það eru svona margir turnar á Írlandi? Einfaldlega vegna þess að þegar forfeður mínir komu siglandi að landi hlupu Írarnir upp í þá þannig að frændur mínir urðu að bíða eftir að þeir urðu svangir og komu niður. Þá tóku þeir konurnar þeirra og nauðguðu þeim og þræddu þessi rauðhærðu gerpi upp á öngla og notuðu í hákarlabeitu. Viltu ennþá slást?"
He got the message og ég er enn uppistandandi. Eða með öðrum orðum The Lizard King reigns.
| 4:32 |