»  off record  »  Kiss my ass
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Kiss my ass
Miðvikudagur, 07. júní 2006

Ég er búinn að hitta of mikið af fyrrverandi mágkonum mínum undanfarið. Ekki það að ég sé að kvarta yfir litla yndinu sem ég hitti um daginn; ófrísk og hamingjusöm og svo geislandi að ég gat varla trúað því að þarna stæði fyrir framan mig barn sem ætlaði að strjúka að heiman fyrir allt of mörgum árum síðan og vildi búa hjá mér vegna þess að stóra systir hennar ætlaði ekki að vera með mér.

Síðan hafa liðið mörg ár og ég bjó með stóru sys í 14 ár og á með henni 2 börn. Hitti aðra og öllu gramari ex-mágkonu í nótt. Hún átti nú ekkert handa mér annað en löngutöng upp í loftið. Sem er magnað vegna þess að hún telur sig vera æðislega VG og gat samt setið til borðs á Bölstofunni með Einari framsóknarlúser og sikkópata sem dundar sér við að drepa smábörn í Afganistan (eða hvar svo sem þsð er sem þeir ganga um nauðgandi og drepandi þessir friðargæslumálaliðar) og einhverri samfylkingarbeyglu.

Pólitík er ekki worth shit á meðan það eru ekki til fyllibyttur eins og ég sem vita hvað þetta snýst um (að drepast fyrir málstaðinn án málamiðlana). Ef það væru til alvöru hugsjónir þyrfti ekki að rjúfa dagskrá RÚV og seinka Lost til þess að segja okkur að Halldóri Ásgrímssyni leiddist í pólitík. Mér var trúað fyrir þessu á Oliver fyrir áramót með þeim skilaboðum að Finnur Ingólfsson ætlaði að taka flokkinn aftur. Svar mitt var "yeah, right" og svo pantaði ég annan tvöfaldan G&T. Sannast samt núna að life imitates fiction en ekki the other way around. Ef græningjarnir læsu Laxness væru þeir kannski ekki að fara á límingununum í dag. Þetta er allt í Kristnihaldi undir jökli, asseholes.

Here´s to you buddy. Sucking my dick!


| 2:49 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff