Þriðjudagur, 13. júní 2006
Símon er byrjaður að krítísera Hollywoodmyndir á blogginu sínu og ferst það býsna vel úr hendi. Hollywood er gott. Gaman að sjá hversu endurgerðin af The Omen hristi upp í hafnfirsku guttunum. Sé þetta tilfellið geta þeir farið að láta sig hlakka til að skíta á sig yfir endurgerð The Wicker Man sem er besta horrormynd ever.
Nýja Omen myndin er vel heppnuð og það er einhvern veginn þannig með þessar Omen myndir að hafi maður horft á eina kalla hinar á mann. Endurskoðaði Damien The Omen II í fyrrinótt. Hún gefur fyrstu myndinni slatta eftir en er samt hin besta skemmtun. William Holden leikur bróður Peck úr fyrri myndinni sem hefur tekið að sér að ala Damien upp. Hann fer auðvitað flatt á því.
Hundur úr helvíti var áberandi í The Omen en nú er komið að krákunum sem eru boðberar voveiflegra dauðsfalla. Afhöfðun Jennings var hápunktur fyrstu myndarinnar en hér er það læknirinn sem lyftuvírinn klippir í tvennt sem er með vinninginn. Líka smart þegar krákan plokkar augun úr forvitnu blaðakonunni sem veður staurblind í veg fyrir 12 hjóa trukk.
Lance Henriksen mætir hér ungur og ferskur til leiks sem liðþjálfi í herskólanum hans Damiens og tekur við barnapíuhlutverkinu af fóstruófétinu í fyrri myndinni. Traustur skúrkur Henriksen.
Taglænið er The First Time Was Only a Warning og sagan mun vonandi endurtaka sig og nýja myndin ætti að geta af sér tvö framhöld. Þriðja myndin The Final Conflict er slöppust en fer langt á Sam Neill í hlutverki Damiens sem er við það að sleppa laus í Hvíta húsinu. Það verður grínlaust að finna leikara í hlutverk fulllorðins Damiens í dag sem getur toppað þann snilling.
In the name of the one who was cast out of Heaven but is alive in me. Hress.
In 1976 the birth of evil was foretold in The Omen
In 1978 a terrifying prophecy was forfilled
and now witness the ultimate challenge to the future of mankind as the trinity of living terror is completed in The FInal Conflict.
Hér hefur Damien af þvi nokkrar áhyggur að the second comming sé á næsta leyti og Jesús muni endurfæðast. Það er því ekki um annað að ræða en að slátra öllum nýfæddum sveinbörnum á Englandi. Skemmtilegasti dauðdaginn: Húsmóðir undir djöfullegum áhrifum straujar smettið á eiginmanni sínum.
Lethal Weapon leikstjórinn Richard Donner kom ferli sínum af stað með látum með The Omen og fylgdi myndini eftir með Superman (endurgerð einnig væntanleg í sumar). Hann segir í þrælskemmtilegu viðtali við Empire í júní að handrit Seltzers, sem hét The Antichrist, hafi verið bæklað. Fullt að yfirnáttúrlegu bulli, hornum og hala og tilheyrandi. Hann hafi strípað allt það burt og gengið út frá því að Damien gæti allt eins verið í lagi og að Peck væri hreinlega geðbilað fórnarlamb ansi margra óheppilegra tilviljanna. Breytingin+nafnbreyting og sándtrakkið sem var keypt af Goldsmith með aukafjárveitingu frá Alan Ladd hjá Fox skilaði sér svo heldur betur í massahrolli sem stenst tímans tönn og samanburð við uppfærsluna.
| 3:02 |