Laugardagur, 24. júní 2006
... in a Roman wilderness of pain
Þetta verður ekki gaman fyrr en maður týnist. Komst samt heim fyrir rest og þarf heldur betur að vinna úr öllu því sem ég sá, heyrði og upplifði. Madness.
Undir heimi daglegs lífs smáborgaranna leynist annar heimur. Heimur dólga, betlara, dópista, glæpamanna, aumingja, útigangsmanna, drykkjusvína og mellna. Þar kraumar lífið í sinni villtustu, spilltustu og banvænustu mynd. Þetta er noir heimurinn og þangað er gaman að koma eigi maður afturkvæmt. Riskí samt að spennan magnast eftir því sem maður kafar dýpra ofan í myrkrið og mann langar alltaf minna og minna til að snúa við.
Þarf að vinna úr gagnahrúgu þessa rannsóknarleiðangurs og ég held tæpast að minnispunktarnir fari ekki lengra en á síður Moleskine nótissubókarinnar minnar í bili. Engin ný sannindi komu samt í ljós: fólk er sorglegt, kalt og vont. Með undantekningum auðvitað.
| 12:19 |