»  off record  »  New Religion
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
New Religion
Þriðjudagur, 20. júní 2006

Við Tommi vorum frekar tæpir í kirkjuna á laugardaginn en hefðum samt náð í tíma ef GPS tækið hefði getað staðsett hana nákvæmlega. Það var því hringt í Alberto sem kom til móts við okkur og lóðsaði. Sagði samt að þar sem við værum hvort eð er seinir væri best að stoppa í einn bjór og koma svo í restina. Það varð úr og þetta var prímaplan þar sem við eyddum samt drjúgum hálftíma í messunni.


Í kirkjunni nenntum við þremmenningarnir ekki að narta í hold Krists og drekka úr honum blóðið en á meðan hinir gerðu það spurði Alberto mig hvort ég væri kaþólikki. Kunni ekki við að segja "bráðum" og svaraði því neitandi. "Ekki ég heldur," sagði hann. "Ég trúi ekki á neitt. Bara sjálfan mig og lifi í núinu, trjánum og himninum." Hann er svo léttur á þessu að þegar gemsinn hans hringdi í miðri athöfn tók hann símann upp, svaraði og byrjaði að tjatta. Þegar þessu lauk tók við heilmikið kossaflens. "Peace, peace, kiss, kiss. Everybody happy," sagði Alberto og svo gerði maður bara eims og á að gera og kyssti alla á báðar kinnar.

Alberto tók svo trúbbann með trompi í veislunni og reyndi að kenna mér að lifa lífinu. Við eigum bara eitt líf og eigum að njóta þessa. Vinna til að lifa en ekki lifa fyrir vinnuna. Honum fannst ég auðvitað algalinn að gera hið síðarnefnda og telja 14 tíma vinnudag eðlilegan. Samkvæmt hans uppskrift á maður að eiga margar lausar stundir og eyða frítímanum með vinum og fjölskyldu en gleyma samt ekki sjálfum sér. "Mér finnst gott að ríða en stundum vil ég bara vera einn."

Þetta er auðvitað laukrétt hjá manninum en til þess að geta farið að ráðum hans verð ég að byrja á að hætta í blaðamennsku einfaldlega vegna þess að sá blaðamaður sem ekki lifir fyrir vinnuna er lélegur blaðamaður og ekki í réttu djobbi. Gæti samt hugsað mér að hætta þessu og gerast hafnarverkamaður í Valencia. Sýnist þeir vera frekar easy going.


| 10:06 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff