Laugardagur, 17. júní 2006
Somebody bring me some water. Can´t you see I´m burning alive.
Og þetta er bara eftir fermingarveislu hér í Valencia. Þeir kunna þetta Spánverjarnir og ég minnist þess ekki að hafa fyrr komið í skemmtilega fermingarveislu. Athöfnin var líka falleg; bæði hátíðleg en um leið gleðilegri og frjálslegri en nokkur lúthersk ferming sem ég hef neyðst til að vera vitni af. Eftir daginn í dag er ég mun nær því að taka upp kaþólska trú en áður en ég hef brætt þann möguleika með mér í nokkur ár.
Kveikjan var snilldarmyndin The Killer eftir John Woo en morðinginn (Chow Yun-Fat) brá sér stundum í kaþolska kirkju. Aðspurður hvort hann væri virkilega trúaður svaraði hann "nei, but Æ like the tranquility here". Sé þetta alveg virka klukkan 18 í Landakotskirkju. Get því skilið þetta en auk þess myndi kaþólskan spara mér sálfræðikostnað með skriftarstólnum og gefa mér tækifæri til þess að öðlast raunverulega trú á Djöfulinn.
Anyway. Alberto, stórvinur minn, súmmeraði þetta allt upp og séra prestur útskýrði fyrir mér í löngu máli munin á kaþólskritrú og mótmælendatrú (á spænsku að vísu þannig að ég er engu nær) en þessir meistarar hafa sannfært mig um að snúa blaðinu við og hætta að vera Hellraiser í öllum skilningum þess orðs. Lífið er of stutt og ég hef verið að misskilja það í 35 ár. Lærdómsríkur dagur.
Alberto kom með nokkur traust djammtipps fyrir stuðið í Carmen í Valencia í nótt og fullyrti að ég myndi ekki enda einn. Heyrðist pikkupin meira og minna vera unnin eins hér og í miðbæ Reykjavikur. Best samt þegar hann sagði mér að konurnar í Valencia væru mjög fallegar og ég væri örugglega ekki vanur dökkhærðum konum en ég þyrfti samt ekki að vera feiminn. Dúdinn missti andlitið þegar ég sagði honum að ég hefði bara búið með dökkhærðum og þekkti lítið annað. Þetta fannst honum ekki passa við hörundslit minn og hugmyndir hans um Íslendinga en það var mikið djókað með tanleysi mitt í dag og pingvin var ítrekað varaður við að fara ekki of geyst í sólinni.
Standi til að kveða The LIzard King niður að kaþólksum sið og dysja hann á Mallorca í næsta mánuði er jafn gott að sleppa dýrinu lausu í Valencia í nótt. Verst samt að Doktor K er fimm tíma akstur í burtu. Hefði ekki verið ónýtt að breyta einhverjum staðnum hérna í Grand Rokk.
| 17:44 |