»  off record  »  Evríboddí frís!
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Evríboddí frís!
Miðvikudagur, 19. júlí 2006

miami-vice.jpgNýja Miami Vice myndin hans Michael Mann er fínerísstöff eins og við var að búast frá þessum hressa stílista. Hann kýs sem betur fer ekki að reyna að fanga 80´s tíðaranda þáttanna en nær samt að keyra upp þvottekta Miami Vice stemningu með næturklúbbum, Bacardi mohitos, hraðskreiðum bílum, enn hraðskreiðari bátum, dúndurgellum, erkitöffurum og helling af byssum.

Crockett og Tubbs eru jafnvel svalari en þeir voru í sjónvarpinu enda gæti Jamie Foxx aldrei orðið jafn mislukkaður og Philip Michael Thomas. Don Johnson er samt auðvitað eini Sonny-inn og það er ekki laust við að maður sakni hans en Farrell dugar ágætlega og ég minnist þess ekki að hafa áður séð mynd með honum þar sem hann fer ekki óstjórnlega í taugarnar á mér (enda er maðurinn asni, edrú or not).

Lt. Castillo er orðinn feitur svertingi, Switek og Zito eru í mýflugumynd, Trudy á sín móment og Gina hefur breytt um hárlit og herdú. Krókódíllinn Elvis er fjarri góðu gamni, Crockett´s Theme eftir Jan Hammer hljómar ekki og Farrell öskrar aldrei "evríboddí frís". Að öðru leyti er þetta vintage Miami Vice.


Brenda: How do you go from this tranquility to that violence?
Sonny Crockett: I usually take the Ferrari.


| 19:13 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff