Laugardagur, 01. júlí 2006
Þessir Þjóðverjadjöflar kunna ekki að hætta. Hvernig fór þessi þjóð að því að tapa WWII? Best klæddir og relentless. Þetta breytir samt svosem engu þar sem Brassarnir munu taka þetta en fjandinn hafi það Churchill þyrfti að vera landsliðsþjálfari Englendinga til þess að þeir gætu unnið þessa maskínu.
Þar sem ég hef haldið með KR áratugum saman, karakterlausu liði sem gefst upp um leið og það fær á sig mark, var ég viss um að þetta væri unnið hjá Argentínu eftir fyrsta skallann, en nei. Þjóðverjar kunna ekki að gefast upp. Treysti því samt að Valur sé búinn að berja Símon í stöppu þar sem það var ljóst eftir leik að blóðhitinn er meiri hjá Argentínumönnum en síprúttandi kartöfluætunum.
Argentínumennirnir á Molly Malone voru ekki hressir í kvöld og sýnu svo ekki verður um villst að þeir kunna illa að tapa. Hélt að beiskikkið í fótbolta eins og öðrum íþróttum ætti að vera drengskapur en það er fjarri lagi. Þetta er stríð og frumskógarlögmálið er því í fullu gildi. Þeir mega samt eiga það Spánverjarnir á Hogans að þeir klöppuðu fyrir Zidane þegar hann innsiglaði sigur Frakka á þeim og klöppuðu svo aftur fyrir Frökkum í leikslok. Spánverjar eru sennilega ekki alveg að fatta þetta en mér fannst þetta flott.
Ich weiß nicht, was soll es bedeuten,
Daß ich so traurig bin
| 0:15 |