»  off record  »  Gettin' jiggy wit it
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Gettin' jiggy wit it
Laugardagur, 29. júlí 2006

Lenti á djamminu með eiginkonunni fyrrverandi í nótt. Alveg hægt að hugsa sér verri félagsskap. Dró hana á milli fastastaðanna minna og við fengum ágætis upprifjun á því hvers vegna við skildum. Við erum worlds apart í þessum málum. Það er samt aldrei leiðinlegt að spóka sig með Önnu og Prikið var ágætis no man´s land sem við gátum bæði sæst á. Tónlistin var meira að segja við hæfi lengra kominna og við gátum dansað við Gettin' jiggy wit it og Snoop Dogg.

Einhverjir hausar snerust á Laugaveginum og ég hef fengið talsvert af fyrirspurnum um meintan samdrátt okkar í dag. Merkilegt að maður geti ekki tekið djammhring með besta vini sínum til 25 ára án þess að það sé verið að ráða eitthvað í það. Annars var þetta alveg eins og í gamla daga; hún með fullu viti og ég fullur. Hún að þagga niður í mér og afstýra áflogum. Skemmtileg togstreyta nostalgíu og skugga fortíðar. Fékk svo skarpa sikkóanalísu í restina. Þurfti auðvitað að kyngja því öllu enda verður ekki um það deilt að hún þekkir mig betur en nokkur annar.


| 21:25 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff