Föstudagur, 28. júlí 2006
Þessi verða sjálfsagt friðsamleg en samt er best að drullast til að mæta enda er ekki margt eftir í þessu lífi sem manni er ekki nákvæmlega sama um.
Þau þroskast seint SUS-kvikindin sem eru eina ferðina enn lögst á álagningarskrárnar af slíkum þunga að það mætti ætla að örlög mannkyns ráðist af því hvort herra Hnýsinn komist að því hvað nágranni hans er með í uppgefnar tekjur (það sem maður stingur undan kemur nefnilega ekki fram í skránum sem gerir þær auðvitað vitagagnslausar og ómarktækar). En það er gott að íhaldsbörnin hafi eitthvað fyrir stafni. Þessi frétt mbl.is segir samt allt um það hversu gersamlega pointless þetta brölt þeirra er þar sem fólk getur komið á staðinn, tuskað bláu pabbabörnin aðeins til og fengið svo að skoða skrárnar í öruggu skjóli bak við afgreiðsluborðið. En þetta er táknrænt. Fyrir andlega fátækt að vísu en við hverju er að búast af ungliðum stjórnmálaflokks sem skiptir hiklaust slétt á blóði og olíu?