»  off record  »  Þrúgur reiðinnar
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Þrúgur reiðinnar
Fimmtudagur, 06. júlí 2006

Then it don't matter. I'll be all around in the dark - I'll be everywhere. Wherever you can look - wherever there's a fight, so hungry people can eat, I'll be there. Wherever there's a cop beatin' up a guy, I'll be there. Nema löggan sé Guardia Civil þá verð ég víðs fjarri.

Sumt veit maður bara og ég hef alltaf verið með það á hreinu að á Spáni eru löggurnar í Guardia Civil stórhættulegar. Óli lenti einu sinn illa í þeim þegar hana manaði þá til þess að járna sig. Það þarf ekki að segja þeim grænu slíkt tvisvar.

Local löggan hérna er OK þó hún gangi með skammbyssur en grænu mennirnir í Guardia Civil eru allt annað mál. Þeir grænu eru með öxi og sverð í skjaldarmerkinu sínu og eru hrokagikkir dauðans. Gerspilltir, kötta kókaín sem þeir gera upptækt o.s.frv.

Þegar maður lendir í stælum við lögguna heima veit maður að það eru ca 50/50 líkur á að maður verði barinn. Fer allt eftir því hversu komplexuð kvikindin eru hverju sinni. Þetta eru samt odds sem eru í lagi og það má því alltaf ögra. Þegar Guardia Civil eru annars vegar er hins vegar lang best að þegja og hlaupa. Þeir eru margir hverjir krúnurakaðir sikkópatar enda eru þeir arfur frá Franco tímanum. Þá áttu þessir fasísku sadistar sinn blómatíma en þeir vita enn ekkert skemmtilegra en að járna menn og berja þá í stöppu í fangaklefanum. Gerist einhver svo djarfur að ætla að kæra þá koma þeir heim til viðkomandi þegar þeir eru í vaktafríi og klára dæmið.

Maður hafði sig því hægan þegar "grænu mennirnir" eða "vondu kallarnir" skutu upp kollinum. Annars er þetta latínó lið allt kolvitlaust í skapinu og við fórum okkur oft að voða þó Guardia Civil væru hvergi nærri. Þetta hyski ver til dæmis konurnar sínar af meiri hörku en Eyjamaður á amfetamíni þannig að það var mikilvægt að lúslesa umhverfið og kanna aðstæður áður en látið var til skarar skríða. Þegar maður lenti five to one síðla nætur fyrir utan bar var t.d. ekkert annað að gera en skjótast heim og sækja Húgó. Skoltinn notaði hann til að fæla spanjólana og augun til að bræða dömurnar. Eftirleikurinn var hafnarfjarðarbrandari vegna þess að enginn hafði rænu á að hringja í Guardia Civil.


| 1:31 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff