»  off record  »  Þrumufleygur
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Þrumufleygur
Miðvikudagur, 26. júlí 2006

Skautaði í gegnum James Bond bókina Thunderball í lélegri íslenskri þýðingu the other night. Þessar bækur eru þrælskemmtileg lesning og ég kíki reglulega til meistara Ara Gísla í leit að íslenskum Bond. Hann selur bækurnar á 300 kall og þær eru hverrar krónu virði. Sérstaklega vegna þess að bannorð eins og "negri" og "kynvillingur" eru notuð þar eins og ekkert sé sjálfsagðara. Enda var ekkert athugavert við þau í þá daga. Skáldskapur er iðulega betri og skemmtilegri heimild um hugarfar á ritunartímanum en sagnfræðibækur.

Bond á vondan dag í byrjun bókarinnar í kaflanum SLAPPAÐU AF MR. BOND og það er vissulega huggun í því að jafnvel hann sleppi ekki við þynnku:
Þetta var einn ef þeim dögum, sem James Bond fannst lífið ekkert nema andstreymi. Hann skammaðist sín meira að segja, en það var harla óvenjulegt. Hann var með slæma timburmenn; höfuðverk og stirð liðamót. Bæði hafði hann reykt og drukkið óhóflega, og þegar hann hóstaði svifu svartlýsandi deplar fyrir augu hans einsog frumdýr í tjarnarvatni. Það fer ekki framhjá mönnum, þegar þeir hafa drukkið einum of mikið.

Bond er alveg í henglum og eftir að M les læknisskýrslu um kappann er hann sendur á heilsuhælið í Hveragerði en í skýrslunni kemur m.a. fram að þrátt fyrir aðvaranir játar hann að hann reyki sextíu sígarettur á dag og þær úr blönduðu Balkan tóbaki, sem inniheldur meira nikótín en ódýrari tegundir. Þegar þessi embættismaður hefur ekki erfiðum skyldustörfum að gegna, þá drekkur hann að meðaltali hálfa flösku af þrjátíu til fjörutíu prósent áfengi á dag. Þá fæst hann heldur ekki til að samþykkja, að taumlaust líf sé ekki rétta meðalið til þess að slaka á spennunni, sem starf hans hefur í för með sér, en slíkt leiðir aðeins til eiturlyfjaástands, sem gæti loksins skaðað hæfileika hans sem embættismanns.

Kvenfyrirlitningin í texta Flemings er geggjuð eins og eftirfarandi handahófskennd dæmi sanna. Bond er í vondu skapi í þynnkunni vegna þess að einkaritari hans er lagstur í inflúensu og hann fékk í staðinn heimska, og það sem verra var ljóta, dækju frá aðalskrifstofunni... Ferlegt alveg.

Bílstjóraanalísan er líka skemmtilega út úr kú.

Konur eru oft athugulir og góðir bílstjórar, en mjög sjaldan fyrsta flokks. Yfirleitt fannst Bond þær fremur hættulegar, lét þær alltaf hafa nóg pláss á veginum og var við öllu búinn. Fjórar konur í bíl fannst honum hámark allrar áhættu og tvær konur næstum því dauðadómur. Konur geta aldrei þagað í bíl og um leið og þær tala þurfa þær að horfa hver á aðra. Þeim er ekki nóg að tala saman.... En þessi stúlka ók einsog karlmaður. Hún beitti allri athyglinni að veginum og ökuspeglinum, áhaldi sem konur nota mjög sjaldan nema til þess að snyrta sig í framan.

Stúlkan sem um ræðir er Domino sem Kim Basinger lék í Never Say Never Again. Svona kemur hún Bond fyrir sjónir:

Bond fannst hún líta út fyrir að vera viljaföst, skaprík, tilfinninganæm kona - yndisleg Arabameri sem leyfði engum að ríða sér nema hestamanni með stállendar og flauelshendur og aðeins með beizli og méli - og aðeins þegar hann hefði vanið hana. Það hvarflaði að Bond að gaman væri að reyna kraftana við hana. En það yrði að vera einhverntíma seinna. Núna var annar maður í hnakknum. Honum yrði fyrst að kasta af baki.

Jamms. Bondinn í bókunum er mun áhugaverðari persóna og veikari einstaklingur en sá sem birtist í bíómyndunum og lestur minn á illa lyktandi Þrumufleygnum sannfærði mig um að ég verð að eignast aftur Casino Royale, Goldfinger og Í þjónustu hennar hátignar sem ég asnaðist einhvern tíma til að lána og hef ekki séð síðan.


| 0:14 |
komment

Jæja, hvað fékkstu margar milljónir í endurgreiddan skatt?

Nr. 1 | Richy Rich | 26.07.2006 | 17:15:17 | [+] |

Why? Skulda ég þér eitthvað?

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 26.07.2006 | 19:58:24 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff