»  off record  »  Seagull Island
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Seagull Island
Laugardagur, 22. júlí 2006

Mávar hafa greinilega tekið við af geitungum sem óvinir íslensku þjóðarinnar númer eitt. Hægrimenn í borgarstjórn Reykjavíkur eru sjálfum sér samkvæmir og vilja leysa vandann með því að skjóta kvikindin. Þessi patent lausn á tilbúnum vandamálum hefur í gegnum tíðina verið einna vinsælust hjá geðsjúklingum; Hitler reyndi þetta á sínum tíma á gyðinga sem sjálfir hafa svo apað þetta eftir honum með ágætis árangri fyrir botni Miðjarðarhafs.

Mávar eru vissulega viðbjóðsleg kvikindi en eru þó ekki verri en svo að þeir fylgja mannfólkinu eftir vegna þess að bestu bitarnir falla af gnægtarborðum mannskepnunnar sem þarf ekki einu sinni að vanda sig til þess að toppa mávinn hvað viðbjóð og óheilindi varðar. Mávarnir voru til dæmis öllu prúðari en mannfólkið á Laugaveginum klukkan 6 að morgni síðasta laugardags. Hlátur þeirra var yfirgnæfður af öskrunum í sturluðum skrílnum og á meðan 15 íslenskir rasistar með strípur í hárinu gerðu aðsúg að svarta manninnum sem sveiflaði dúkahníf í nauðvörn og spurði á lýtalausri íslensku "hvað hann hefði gert?" kroppuðu mávarnir í ælur og hálfétnar langlokur og virtust mun sáttari við líf sitt og umhverfi en uppréttir fulltrúar kórónu sköpunarverksins.

Það má vissulega leysa allt með ofbeldi og fasisma en ef það er virkilega vilji til þess að redda mávamálinu með skotvopnum væri þá ekki heilbrigðast að ráðast beint að rót vandans og skjóta eitthvað af þessu helvítis fólki? Mávurinn fer svo bara eitthvert annað þegar hann er búinn að kroppa augun úr hræjunum.


| 21:57 |
komment

Öllu viðurstyggilegri eru fálkafjandarnir en mávarnir. Skjótum flokk fálkans sem er eitt morðkvikindi og óþrifaskepna. Eitt af augljósu merkjunum um íslenska vanmenningu er að helvítis rasistarnir hérna eru með hár og strípur eins og miðaldra mussukellingar. Af hverju geta þessir píkusar ekki verið með skinskalla eins og hverjir aðrir daunillir hrægammar annars staðar á byggðum bólum? Skrýtnari fuglar en mávar. Og halda vöku fyrir fleirum.

Nr. 1 | K.S. | 23.07.2006 | 1:03:50 | [+] |

Vó! Easy on the anger amigo en bara eitt svar: Bylting og þá meina ég alvöru, gamaldags; blood for blood and by the gallon

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 25.07.2006 | 0:40:10 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff