»  off record  »  Sjálfsmorðsbréf fyllibyttu
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Sjálfsmorðsbréf fyllibyttu
Laugardagur, 29. júlí 2006

Þá er loksins komið að þessu. Ekki hægt að fresta þessu lengur enda engin ástæða til þar sem það hefur lengi staðið til að binda enda á þetta. Ætlaði að setja einhver fleyg lokaorð inn hérna og kveðja með stæl. Dettur bara ekkert í hug og stel því síðustu dagbókarfærslu Carry-On leikarans Kenneth Williams en hann páraði þetta í dagbókina sína rétt áður en hann drap sig.

"By 6.30 pain in the back was pulsating as it's never done before... so this, plus the stomach trouble combines to torture me - oh - what's the bloody point?"

Það er ekki hægt að gera jarðlífið upp með skýrara móti.

Ég var löngu búinn að ákveða að hætta að drekka 1. ágúst þannig að það er komið að leiðarlokum. Síðasta fylliríið í kvöld. Það þýðir að ég verð að drekka allar tegundir sem til eru og kveðja þær, hverja og eina, með löngum, blautum og áfengum kossum. Veit ekki alveg hvernig ég á að útskýra fyrir þeim að allar fallegustu minningarnar mínar um þær eru týndar í blakkátum en þetta verður fallegt.

Gaman að segja frá því að Trausti Hafliðason, fréttastjóri á Fréttablaðinu, tengist grand finaleunum mínum ansi náið. Síðast þegar ég fór meðvitað á "síðasta fyllirí", helgina áður en ég fór á Teig , hitti það á 30 afmælið hans og í kvöld er hann með útgáfutónleika með tríóinu (Robbi Reynis og Jón Sigurður) sínu Los Heartbreakers. Nóttina sem Trausti hélt upp á þrítugsafmælið sitt var mér hent fjórum sinnum út af Ölstofunni þannig að kvöldið í kvöld ætti að verða hressilegt.

Gummi Steingríms kvaddi mig hlýlega áður en ég fór á Teig á sínum tíma og spurði mig hvort ég væri þá alveg hættur að drekka og kæmi aldrei aftur. Ég trúði því þá. Ef ég fengi sömu spurningu um mánaðarmótin gæti svarið aldrei orðið annað en "yeah, right".


| 21:48 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff