»  off record  »  Sneið af Íslandi
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Sneið af Íslandi
Þriðjudagur, 18. júlí 2006

Það er leiðinlegt að fljúga. Ekki jafn leiðinlegt og á Vogi en leiðinlegt samt. Kemur kannski til vegna þess að ég hef það fyrir reglu að fljúga edrú. Flaug með Icelandair (eða hvað þetta heitir núna) í fyrra og þá var Along Came Polly inflight myndin. Hún var það líka um daginn.

Á Vogi er hápunktur vikunnar vídjósýning á sunnudögum. Yfirleitt alltaf As Good as it Gets. Þegar ég var þar síðast höfðu nokkrir reynsluboltarnir séð hana fimm sinnum og biðu spenntir eftir að ná henni einu sinni enn. Þá var auðvitað breytt út frá venjunni og boðið upp á The Human Stain. Kraftaverk að enginn skyldi farga sér eftir þau ósköp.

Maturinn á Vogi er hins vegar góður ólíkt flugvélamatnum sem er framreiddur skv. gæðastöðlum McDonalds. Alltaf jafn vondur. Hjá Icelandair er hann borinn fram í huggulegum pappaöskjum með mynd af íslenskum mosa og berjalyngi með áletruninni SLICE OF ICELAND. Þetta er heiðarlegasta landkynning sem ég hef rekist á þar sem land og þjóð eru nákvæmlega eins og þurr kjúklingabringa og ofsoðið pasta.


| 0:52 |
komment

Það besta sem Ísland hefur upp á bjóða hugsaði ég á leiðinni út í síðustu viku. Einhvern veginn datt mér samt í hug að snúa heim aftur. Eitt sökkar þó meira en að fljúga, innritun í Kastrup. Einn og hálfur tími af leiðindum og sjálfsinnritunin virkar ekki.

Nr. 1 | Brynjólfur Þór | 18.07.2006 | 11:27:05 | [+] |

Sökkar að fljúgja með almúganum á Ökonómí. Bara skipt um matseðil einu sinni í mánuði!

Nr. 2 | SagaClassdjönkíinn | 18.07.2006 | 15:20:54 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff