»  off record  »  The Art of Divorce
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
The Art of Divorce
Mánudagur, 24. júlí 2006

All warfare is based on deception.
Therefore, when capable, feign incapacity; when active, inactivity.
When near, make it appear that you are far away; when far away, that you are near.
Offer the enemy a bait to lure him; feign disorder and strike him.

Ágæt vinkona mín hrósaði mér um daginn fyrir það að vera markaðssnillingur fyrir það að hafa tekist meistaralega að markaðssetja mig sem aumingja og fyllibyttu þegar ég er eitthvað allt annað. Þetta kompliment orkar að vísu tvímælis þar sem það er fátt sem ég hef jafn mikla andstyggð á og markaðsfólk. Það vill hins vegar svo óheppilega til að ég styðst mikið við sjálfshjálparbókina The Art of War, eftir Sun Tzu, og eins og allir meðal vel upplýstir fábjánar vita byggir markaðsstarf á hernaðarfræðum.

Ég er enn að reyna að ná bókum, myndböndum og ýmsu öðru smálegu sem Anna hélt eftir við skilnaðinn og gengur svona upp og ofan. Hafði af henni Bottom Live 2 og 3 um helgina en hún rígheldur í 1 sem er auðvitað lang besta spólan. Þá neitar hún að sleppa takinu af The Vampire Omnibus, Vampires eftir Konstantinos og Mannkynssögu BSE (heldur því fram að hún sé í hausnum á mér og ég þurfi hana því ekki). Structuralism and Semiotics mátti ég hins vegar taka.

Art of War er ein þeirra bóka sem við höfum ekki þurft að rífast um enda áttum við hvort sitt eintakið þegar við skildum þannig að þetta gat auðvitað ekki farið nema á einn veg. Hvernig afgangurinn af the spoils of war skiptist mun svo líklega ráðast af því hvort okkar hefur lesið bókina betur.


| 16:23 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff