»  off record  »  Factotum
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Factotum
Þriðjudagur, 29. ágúst 2006

barfly2.jpgKvikmyndahátíðin hans Ísa byrjar á morgun með frumsýningu Factotum. Bukowski klikkar ekki, Post Office, Factotum og Women eru hreinn yndislestur og myndir byggðar á þeim ættu alltaf að vera bitastæðar.

Hafði ekki tíma til þess að sjá Factotum í Cannes 2005 en treysti mér alveg til þess að mæla með kaupum á henni óséðri á sínum tíma og var hundfúll þegar ég komst ekki á sýninguna með IIFF liðinu. Cannes er víti í anda Dantes fyrir blaðamann og movie buff sem verður að neita sér um megnið af kræsingunum á gnægtaborðinu og eyða dýrmætum gláptíma í hlaup á milli kynningarfulltrúa, junketa, blaðamannafunda og viðtala.

Fæ loksins að sjá myndina annað kvöld og hef fulla trú á Matt Dillon í Chinaski hlutverkinu. Mickey Rourke var helvíti skemmtilegur í rullunni í Barfly. Þetta var sennilega það síðasta sem hann gerði af viti áður en hann niðurlægingartímabilið hófst. Bukowski skrifaði handritið þrátt fyrir yfirlýsta andstyggð á kvikmyndaforminu og var sáttur minnir mig. Hlýtur að vera þar sem hann pósaði á þessari mynd með Fay og Mikka.

Dillon er á vissan hátt að glíma við stóra bróður sinn með hlutverkinu en árið 1983 lék hann litla bróður Rourke (The Motorcycle Boy) í Rumble Fish. Samkvæmt taglæninu var Dillon trying to live up to his brothers reputation. His brother can't live it down.

Wanda: I hate people. Do you hate people?
Henry: I don't hate people. I just like it a lot better when they're not around.

Mæltu manna heilastur, bróðir!


| 19:48 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff