Laugardagur, 19. ágúst 2006
Dvergvaxinn stjórnmálaflokkur í dauðateygjunum heldur fund og kýs sér formann og það er sjónvarpað beint frá ósköpunum á tveimur stöðvum. Plebbaland.
Það hefði getað orðið eitthvert fútt í þessu ef skemmdu framsóknarbörnin hefðu boðið sig fram en við Stjáni féllum á tíma þar sem við náðum ekki sambandi við Gumma formannsefni í tæka tíð.
Lænöppið hefði verið svona:
Formaður: Gummi
Varaformaður: Stjáni
Ritari: Tóti
Bömmer, vissulega, þar sem þetta var síðasti sjéns þar sem þessi meinsemd mun þurrkast út í næstu kosningum.
| 16:39 |