Laugardagur, 19. ágúst 2006
Ah-ha-ha-ha-haar, watching your tellies are you? Addling your brains? We're having an evening of culture and poetry and chess you know, while you're sitting there vegetating in front of Emmerdale Farm, you poor sad peasants.
Ég hef haft það fyrir sið að vera heima og horfa á Stallone myndir á menningarnótt. Þó ég hafni öllum skilgreiningum á há - og lágmenningu þá hefur mér fundist þetta skemmtilega mikið kitsch og ákveðin antithesis þessa ofhlaðna og hallærislega kvölds. Cobra hefur yfirleitt verið Menningarnæturmyndin mín en nú ætlaði ég að taka þetta upp í nýjar hæðir með tripple feature: Rambo III, Over the Top og Rocky IV.
Klikkaði illilega á þessu og hef í staðinn stundað menningu einn í hellinum með því að hlusta á tónlist, dansa við sjálfan mig og drekka rauðvín úr hauskúpu, sem er ekki bjúgviður hausa eins og forfeður vorir notuðu sem drykkjarílát.
Allt er þetta samt gert í minningu Byrons og þess vegna er ég með brjálað bjarndýr, mannýgt tígrisdýr og tvo gullfiska sem vakta hellismunann. Hér kemst enginn inn óboðinn en partílætin i næsta húsi virka á mig eins og kall óbyggðanna. En Byron orðaði þetta auðvitað best sjálfur:
Let us have wine and women, mirth and laughter, Sermons and soda water the morning after.
Ef þetta er ekki menning þá veit ég ekki hvað....
Richie: I feel just like Lord Byron. And that other bloke, you know, Earl Thingy, with the long dressing-gown and the flappy stuff around his chin.
Eddie: Really? 'Cause you look like a stupid git with his raincoat on inside out.