»  off record  »  Vopnahlé
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Vopnahlé
Miðvikudagur, 30. ágúst 2006

Hef ákveðið að taka ljóðið aftur í sátt. Kannski vegna þess að Þór Steinarsson blæddi á mig rauðvíni á Næsta bar um daginn. Veit það ekki en ef svo er hafa þessir nýhilistar loksins gert eitthvað significant fyrir ljóðið.

Ætla samt að fara varlega í þetta og byrja með mönnum sem ég treysti; Jónasi, Grími Thomsen, Fjallaskáldinu, Byron, Shelley og Keats. Og auðvitað Ísak Harðarsyni sem ber höfuð og herðar yfir íslensk ljóðskáld á seinni hluta síðustu aldar þó við höfum vissulega fjarlægst nokkuð eftir að hann sá ljósið. Aðallega vegna þess að innst inni óttast ég það að ég muni gera hans lausn að minni.


| 17:56 |
komment

Það læddist upp að honum
varlega
andaði á snögghærðan hálsinn
og hvíslaði:
Hey - manstu eftir mér?
Auðvitað man ég eftir þér,
sagði hann.
Andstuttur.
En það er samt óþarfi að vera svona helvíti
eitthvað
lélegt?
Sorrí, en við erum bara sona.
Sum okkar.
Hann dæsti.
Umburðarlyndi er synd, hugsaði hann.
En brosti svo hughreystandi.
Þú ert ókei - lélegt, en ókei.
Hefurðu hitt Ísak nýlega?

Nr. 1 | Tumi | 31.08.2006 | 4:04:22 | [+] |

Ha? Que? Wie,
bitte? Say what?

Allt á þetta við
um síðasta komment

ekki síður en færsluna
sjálfa. Ha?

Nr. 2 | kguttesen | 31.08.2006 | 7:09:30 | [+] |

Það er aumur heimur þar sem skáldaspýrur og einhverjir þriðja flokks útgefendur geta mútað blaðamönnum með brennivíni.
Vona að ég sé að misskilja eitthvað hrapalega og að þú sverjir hérmeð af þér ósóman.
Virðingarfylst,
Þórarinn Leifsson

Nr. 3 | Þórarinn Leifsson | 31.08.2006 | 11:03:42 | [+] |

Þetta er aumur heimur, desværre.

Nr. 4 | Tóti sjálfur | 31.08.2006 | 12:17:04 | [+] |

Jæja.
Þá er það skjalfest.
Verra þegar atriði eru einhvernvegin á gráu svæði.
Kveðja

Nr. 5 | Þórarinn Leifsson | 31.08.2006 | 12:36:59 | [+] |

Þegar hann verður búinn að drekka með barnaníðingi hættir hann loksins.

Einkennilegt afbrigði að mjúkri hefnigirni býr í Guttesen.

Nr. 6 | ábs | 31.08.2006 | 22:33:23 | [+] |

Tja, jú, einkennilegt má það teljast að svara fyrir komment á bloggi ÁBS með kommenti á bloggi ÞÞ. En sorglegt hlýtur hitt að teljast, að hann sé ekki stærri eða þroskaðri maður en svo að hann telji sig knúinn til hefnda fyrir að einhver eigi erfitt með að skilja hann. Enn sorglegra er að hann a)níðist á þriðja aðila (ÞÞ) sem skirfar hér vel skiljanlega færslu, til þess að ná sér niðri á mér og b)skuli ekki þekkja aulahúmor frá ljóðlist. Sem segir kannski sitt um ástand ljóðsins og skýrir kannski að einhverju leyti hversvegna ÞÞ var ósáttur við það in the first place. En fyrirgefðu Tóti minn fyrir þessa innrás á Badabing, ég held það borgi sig að senda bara Paulie í málið, frekar en Chris ef þú ákveður að gera eitthvað í þessum óskunda.

Nr. 7 | Tumi | 3.09.2006 | 0:38:37 | [+] |

Ég á nú minn þátt í þessu rugli og biðst afsökunar á því.

Nr. 8 | ábs | 3.09.2006 | 19:36:00 | [+] |

Við Paulie erum einfaldir menn og þessi vaðall í ykkur hefur farið gjörsamlega fyrir ofan garð og neðan hjá okkur so fuhgeddaboutit.

Nr. 9 | Tóti sjálfur | 3.09.2006 | 20:24:04 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff