»  off record  »  Winston
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Winston
Sunnudagur, 06. ágúst 2006

Churchill.gifMér var ungum kennt að bera virðingu fyrir Winston Churchill. Ferlega flottur kall og gjörsamlega frábær í kjaftinum. Þar fyrir utan var hann lífsnautnaseggur sem kunni að meta áfengi og tóbak og nennti aldrei að hreyfa sig. Þunglyndur var hann líka og á heiðurinn af flottustu þunglyndismyndhverfingu sem til er en hann talaði um að svarti hundurinn væri kominn á kreik þegar hann fór í lægðir.

Komst yfir bráðskemmtilega bók um daginn þar sem tilfærðar eru yfir 1000 tilvitnanir í þennan magnaða stjórnmálamann. Davíð Oddsson hefur aldrei farið leynt með aðdáun sína á Winston og þegar maður sér hvernig Churchill hæddi andstæðinga sína sundur og saman fer auðvitað ekkert á milli mála hvert Doddsson hefur sótt sína taktík sem gerði hann að einum skemmtilegasta pólitíkus þjóðarinnar.

Hér eru nokkur viskukorn frá feita karlinum með vindilinn:

Um áfengi

All I can say is that I have taken more out of alcohol than it has taken out of me. (Sammála)

When I was younger I made it a rule never to take a strong drink before lunch. It is now my rule never to do so before breakfast. (Á þetta eftir)

No one can ever say that I ever failed to display a meet and propper appreciation of the virtues of alcohol.
(Passar)

A single glass of champagne imparts a feeling of exhilaration. The nerves are braced, the imagination is agreeably stirred, the wits become more nimble. A bottle broduces a contrary effect. (Laukrétt)


Um vindla

Of two cigars pick the longest and the strongest.

Smoking cigars is like falling in love; first you are attracted to its shape; you stay with it for its flavour; and you must always remember never, never, let the flame go out. (Gengur með vindla, verra með konur)

Um Geroge W. Bush

When heads of states become gangsters, something has to be done.


| 20:59 |
komment

Þetta er auðvitað snilldarbók. Besta sagan er auðvitað þessi fræga af samskiptum hans við Bessie Braddock, konunni sem móðgaðist hrikalega þegar Churchill mætti einu sinni sem oftar í þinghúsið og sagði: "Winston. You're drunk, and what's more, you are discustingly drunk!" Churchill virti Bessie fyrir sér og svaraði:"And might I say, Mrs. Braddock, you are ugly, and what's more, you are discustingly ugly. But tomorrow I shall be sober." Einhverjir láta nú fylgja að Churchill hafi endað á orðunum "...but you will still be ugly." Ætli Humes hafi samt ekki rétt fyrir sér.

Nr. 1 | Brynjólfur Þór | 7.08.2006 | 21:26:19 | [+] |

Við fylgjum Humes enda vita menn í okkar bransa að ætíð skal hafa það sem betur hljómar.

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 7.08.2006 | 21:45:05 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff