Bad hair year
Þriðjudagur, 12. september 2006
Efnahagsástandið er þannig um þessar mundir að ég neyðist til að safna hári. Þetta felur í sér að hvert tískuslysið rekur annað á hausnum á mér. Veit varla hvort það er jákvætt eða neikvætt að Christophen Walken tímabilinu fer að ljúka en í kjölfarið mun fylgja alls konar óskilgreinanlegur horror sem mun toppa þennan verst hærða leikara Hollywood. Botninum verður svo náð með Da Vinci lúkki Tom Hanks en þaðan mun leiðin liggja beint upp á við þegar hnakkasíddin fer að draga dám af sjálfum JÁJ. Það felur þó varla í sér að eiginfjárstaðan muni styrkjast með hverjum nýjum millimetra.