»  off record  »  Í gær
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Í gær
Þriðjudagur, 12. september 2006

Yesterday,
All my troubles seemed so far away,
Now it looks as though they're here to stay,
Oh, I believe in yesterday.

Suddenly,
I'm not half the man I used to be,
There's a shadow hanging over me,
Oh, yesterday came suddenly.


11. september 2001 er 22. nóvember 1963 og 7. desember 1941 (a date which will live in infamy) minnar kynslóðar. Alltaf voða gaman að geta sagst muna NÁKVÆMLEGA hvar maður var og hvað maður var að gera þegar sögulegir atburðir áttu sér stað. Ferlega hallærislegt in fact en það er eitthvað rúnk í þessu.

En maður missti semsagt af því þegar JFK var drepinn og þegar Japanir bombarderuðu Perluhöfn en ég get huggað mig við að ég man 9/11, daginn sem heimurinn breyttist NOT. Þetta er beisikklí ðe seim sjitt og hefur alltaf verið. Minnir líka að ég hafi verið að keyra upp á bílastæðið á 2. hæð í Kringlunni þegar Berlínarmúrinn hrundi 1989. Man ekki dagsetninguna en ég er ekki frá því að heimurinn hafi miklu frekar breyst þá.

Anyhu. 11. september fyrir 5 árum var ég að drekka kaffi á Súfistanum og láta segja mér að ég ætti að fara í meðferð. Fékk símtal þar sem mér var sagt frá fyrri flugvélinni og gat ekki verið meira sama og hélt áfram að drekka kaffið og hlusta á AA bullið. Var truflaður aftur með símtali um seinni vélina en var enn slétt sama en var samt orðinn nett pirraður á þessu ónæði og fór svo í vinnuna að skrifa fréttir um þetta. Ultimate æðruleysi?

Annars fer þessi dagsetning frekar í pirrurnar á mér en það er nú bara vegna þess að 11. september í fyrra fór líf mitt á hvolf eina ferðina enn, ég datt ("féll" eins og það heitir skv. aumingjafræðunum) hressilega íða, fékk lögguna í heimsókn (alltaf kómískt) og var kominn á Vog viku seinna. Hata þennan dag semsagt aðallega þar sem hann virðist tengjast drykkju minni órjúfanlegum böndum en þessi dagsetning var merkingarlaus fyrir mér þar til mín prívat heimsmynd breyttist (again) í fyrra.


| 1:30 |
komment

Þú ert undir ógeðslegum amerískum áhrifum. Dagurinn er góður vegna þess að T.p. gömul óvinkona þín fæddist einmitt þá. Ég víl að þú gleðjist yfir því, annars fer ég í drasl og stöppu.

Luv

-þhs

Nr. 1 | Tóta | 12.09.2006 | 5:10:54 | [+] |

Langar að gera eina athugasemd, þú varst allsgáður allan 11.september í fyrra og "féllst" alls ekki. Get ekki séð að framkoma þín þann daginn hafi tengst drykkju á nokkurn hátt.

Nr. 2 | Þóra | 12.09.2006 | 11:09:41 | [+] |

það er þér Pönk ég er ameríkaniseraður út í gegn með öllum þeim viðbjóði sem því fylgir en til hamingju með daginn og allt það. mun framvegis hafa þessa dagsetningu í hávegum. hvað hitt varðar er það vissulega rétt að ég "féll" ekki 11. sept enda hef ég aldrei fallið bara hætt við að hætta. minnir samt að ég hafi komið við á gamla Blúsbarnum þetta kvöld. neyslutenging framkomu er svo loðinn, teygjanlegur og leiðinlegur debatt sem fer Tóta Tyrfings betur en mér. góð athugasemd samt sem er hér með færð til bókar.

Nr. 3 | Tóti sjálfur | 12.09.2006 | 12:30:41 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff