»  off record  »  Netslúður og kjaftæði
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Netslúður og kjaftæði
Sunnudagur, 17. september 2006

Netið er frábær vettvangur fyrir slúður og óstaðfestar fréttir enda ákveðið frelsi, anarkí og kæruleysi stórir þættir í eðli miðilsins og þar er því sjálfsagt að ganga lengra en gömlu miðlarnir. Það er hins vegar ekki heiglum hent að halda úti góðum slúðurmiðli á netinu. Krafan um örar og reglulegar uppfærslur er mikil og þá segir það sig sjálft að það þarf að vera eitthvert "spunk" í meirihluta molanna. Þetta hefur hingað til ekki verið gert betur hér á landi en þegar Hrafn Jökulsson var með Pressuna á Strik.is. Steingrímur Ólafsson tók síðar góða spretti á Fréttir. com og Orðið á götunni hefur verið að myndast við að fylla skörð þessara forvera með ákaflega misjöfnum árangri.

Það hallærislegasta við framsetningu Orðsins á "skúbbunum" sínum er vitaskuld hástafamerkingin "SKÚBB" í fyrisögnum mola sem þeim sem þar skrifa finnst vera æðislega merkilegir. Góðar fréttir og heví skúbb hafa hingað til getað selt sig sjálf auk þess sem það lummulegasta við Orðið er að skuggalegur fjöldi "skúbbanna" þar eru ekki skúbb heldur "crap" sem fær ekki staðist. Svansson hefur gert löngu tímabæra en handahófskennda áreiðanleikakönnun á Orðinu á götunni en ég hef það á tilfinningunni að ef þetta yrði gert kerfisbundið myndi það koma á daginn að meirihluti "skúbbanna" þar séu alls ekki skúbb.

Samkvæmt gamalli þumalputtareglu sem kennd er við einn nestorinn í ágengri blaðamennsku á Íslandi er frétt frétt ef hún er sönn en sandkorn (slúður) sé hún lygi. Sé þetta ekki tekið of bókstaflega þá er þetta ágætis greining. Gott slúður er þó fyrst og fremst frétt sem fæst ekki staðfest og nauðsynleg útgönguleið fyrir blaðamenn þegar þeir sem eiga hlut að máli vilja þegja góða frétt í hel. Þetta vopn er þó vandmeðfarið og það snýst í höndum þeirra sem kunna ekki með það að fara. Sumt slúður er einfaldlega of gott til þess að vera satt og þá er ekki gott að láta skúbbgredduna hlaupa með sig í gönur. Góðir blaðamenn þurfa vita hvenær þeir eiga að halda kjafti. Þeir eiga auðvitað helst aldrei að gera það nema þegar þeir vita ekki hvern fjandann þeir eru að gera en þá er mest hætta á því að fréttir þeirra breytist í skáldskap.


| 20:23 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff