»  off record  »  Óli
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Óli
Þriðjudagur, 26. september 2006

Heyrði í Óla sem, vann með mér á bensínstöðinni fyrir 14 árum, í dag. Óli er ekki eins og fólk er flest vegna þess að hann er ekki leiðinlegur en það er sorgleg staðreynd að mikill meirihluti þeirra sem orðið hafa á vegi mínum í gegnum tíðina er leiðindapakk sem hefur drepið dýrmætan tíma með tilvist sinni. Óli er alveg ekta og það var helvíti hressandi að heyra í honum, í fyrsta skipti í marga mánuði, enda maðurinn svo mikið ævintýri að mann hlakkaði til að mæta í þessa viðbjóðslegu vinnu á meðan við vorum saman á vakt.


Steingrímur Njálsson
var mikið í fréttum þegar við unnum saman og umræða um barnaníð áberandi. Við áttum þá báðir pínulitlar dætur og Óli tilkynnti mér það einhvern daginn að ef einhver misnotaði dóttur hans þá myndi hann drepa viðkomandi án þess að hugsa sig um. Bara banka upp á hjá honum og skjóta af honum hausinn með haglabyssunni. "Ég skal líka gera það ef einhver gerir dóttur þinni eitthvað vegna þess að ég veit að þú ert aumingi og myndir aldrei gera neitt."

Alveg laukrétt en mér hefur alltaf þótt það notaleg tilhugsun að vita að börnin mín eru völduð af manni sem lætur verkin tala og segir ekkert sem hann er ekki tilbúinn til að standa við.


| 22:55 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff