Miðvikudagur, 13. september 2006
Alcohol is like love. The first kiss is magic, the second is intimate, the third routine. After that you just take the girl´s clothes off.
Lesandi sem ég þekki ekki neitt hafði samband við mig, að því er virðist vegna þess að hann hafði dregið þá ályktun af lestri síðunnar að ég væri alkóhólisti. Þetta virtist nú samt ekki vera neinn liður í tólfta spors vinnu þannig að ég fatta nú ekki alveg punktinn. Þar fyrir utan er mér fyrirmunað að skilja hvernig fólk getur fengið það út að ég sé alki. Mér finnst bjór andstyggilegur og hallærislegur drykkur, ég hef átt óopnaða Smirnoff flösku í hálft ár vegna þess að ég drekk ekki vodka sem er viðbjóður. Ég fúlsa við tekíla, jagermeister, gammel dansk, dry martini, koníaki og landa. Er kominn með krónískt ógeð á G&T og fékk leið á hvítvíni fyrir 7 árum. Kardó og tannlæknaspíra hef ég aldrei drukkið og ekki heldur reynt að gera rauðspritt drykkjarhæft með því að setja það saman við mjólk og frysta. Ef ekki væri fyrir romm og rauðvín þá myndi mig sennilega aldrei langa í áfengi. Hér er annað hvort um markvissan mislestur að ræða eða ótrúlegan misskilning.
Var ekki höfundur Mölbrotinn að lenda í einhverju svipuðu nýlega?
| 22:17 |