Sunnudagur, 17. september 2006
Bætti við nokkrum bloggtenglum og held þá að listinn hér til hægri sé orðinn tæmandi yfir þau blogg sem ég skoða óreglulega. Upp til hópa fínerísfólk en þeir Ármann Jakobsson og Jónas Kristjánsson eru enn áberandi bestu bloggarar landsins, skarpir, snarpir og gagnorðir. Eðalhúmorinn er helsti styrkur Ármanns og þó Jónas sé oft helvíti pirraður þá er hann enn skemmtilegasta hnútasvipan í bransanum.
Newcommerarnir eru Steingrímur Sævarr sem er byrjaður að hugleiða á fullu, Davíð Þór sem hefur greinilega engu gleymt og fær extra prik fyrir að vera orðinn Grapevinaskelfir. Dr. Gunni hvarf úr tenglasafninu þegar gamla síðan hrundi og er kominn inn aftur og svo er Sultukallinn hennar Heiðu vaknaður til lífsins. Eðalsýra. Gambrann hef ég kíkt á af og til með löngu millibili en hann er að verða regluar og flýtur með í þessari uppfærslulotu.
| 21:51 |