Mánudagur, 09. október 2006
300 er mögulega töffaralegri myndasaga en Sin City flokkurinn og ÞESSI treiler er alveg að virka. Sýnist Butler alveg vera að ná þessu enda gerir maðurinn sér fulla grein fyrir því að þessi mynd er the big break. Hann sýndi því amk fullan skilning að ég skyldi frekar vilja ræða 300 en Bjólfskviðu við hann um daginn. Annars er ekki mikið meira um þetta að segja. Orrustan við Laugaskörð er frækilegasta vörn mannkynnsögunnar og Spartverjar mestu töffarar allra tíma.
Miller er auðvitað með karlmennsku og testósterón á heilanum og siðfræði Spartverja höfðar sterkt til hans og hann þreytist sennilega seint á því að minna á afrek Leonídasar og þannig er lokabardaginn í The Big Fat Kill innblásinn af Laugaskörðum. Þetta komst að vísu ekki fyrir í Sin City myndinni en er gerð góð skil í bókinni. Þar vill svo heppilega til að Dwight kann mannkynssöguna sína, velur bardagastaðinn með það fyrir augum að fjöldi andstæðinganna vinni gegn þeim í þröngri stöðu og svo er bara um tvennt að velja annað hvort berjumst við í skugganum þegar örvar þeirra skyggja á sólina og deyjum með reisn eða treystum á að um það bil hundrað mellur í leðri og netasokkum mæti með vélbyssurnar sínar.
Ferðamaður, seg þú Spartverjum að vér hvílum hér fyrir því að vér hlýddum lögum þeirra.
| 0:16 |