»  off record  »  Andstyggð
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Andstyggð
Þriðjudagur, 17. október 2006

Þrátt fyrir djúpstæða mannfyrirlitningu og andstyggð á flestu því sem dregur andann tekst mér yfirleitt (edrú) að vera ákaflega dagfarsprúður og kurteis. Fæ samt sem betur fer stundum tækifæri til þess að vera dónalegur, ef ekki beinlínis ruddalegur (edrú) í mannlegum samskiptum en það gerist helst þegar pakk sem ég vil ekki tala við hringir í mig.

Fékk til dæmis brjálaða útrás í vetur þegar einhver ömurleg krakkakvikindi frá Vöku og Röskvu (skráði mig fyrir misskilning í síðasta haust) hringdu í mig til þess að hvetja mig til að kjósa til Stúdentaráðs. Ljóti skíturinn sem ég jós yfir það lið enda óþolandi að fólk gangi út frá því að maður nenni að hafa skoðanir á einhverju sem er jafn futile og bjánalegt og stúdentapólitík. Var í Háskólanum í sex ár á sínum tíma, ef ég man rétt, og kaus aldrei. Hefði svosem alveg getað kosið vinstraliiðið en gat aldrei munað hvort var hvað og sleppti því frekar en að taka sjénsinn á að kjósa íhaldsbörnin.

Ég fékk ennþá meira kikk út úr samtali við íhaldstuðru sem hringdi í gemsann minn fyrir borgarstjórnarkosningarnar. Það var riot og ég gef mér að hún hafi farið að grenja eftir að ég skelllti á hana. Og svo fékk ég annað svona breik áðan þegar einhver Hive dvergur hringdi. Vildi endilega bjóða mér ADSL en síðast þegar þetta krimmabatterí hringdi í mig afþakkaði ég pent en þeir þökkuðu fyrir sig með því að segja upp Vodafone áskriftinni minni og skrá mig hjá sér (þetta er síður en svo einsdæmi þegar þessir nóboddíar eru annars vegar) með þeim afleiðingum að ég sat fyrir rest upp netlaus þegar ég kom heim frá Cannes. Var því fullur þegar ég hringdi í helvítis býflugnabúið og hótaði fasistunum þar limlestingum. Sú gremja blossaði upp aftur í kvöld og ég leyfði símakrypplingnum að hirða leyfarnar. Mér líður eins og ég hafi fengið það en á eftir að finnast mér hafa verið nauðgað eftir mánuð þegar ég stend uppi netlaus vegna þess að ég er með meint viðskipti við Hive.


| 22:00 |
komment

Þú sérð ekki samhengi hlutanna Þórarinn. Það sem þú nefnir: að hundskamma þjónustufólk fyrir að sinna sínum láglaunastörfum, það finnst mér ekki til fyrirmyndar. Þú átt, sem blaðamaður á stærsta dagblaði Íslands, að geta ráðist að rótum vandans og skamma frekar helvítis auðvaldspakkið sem hagnast á vitleysingum einsog okkur, sem iðulega látum bjóða okkur hvað sem er.

Þú veist alveg jafn vel og ég að með því að ausa þér yfir litla landsímamanninn, þá kemurðu engu áleiðis.

Love and kisses
-þhs

Nr. 1 | Þórunn Hrefna | 17.10.2006 | 23:06:47 | [+] |

Þetta er uppsöfnuð gremja Tóta mín eftir að hafa tekið við skít frá Tótum (kk) þessa heims sem litli Essomaðurinn í 11 ár. Ekki útilokað að ég hafi sem blm reynt að ráðast að rót vandans í þessu tilfelli en þú veist nú jafn vel og ég hvernig slíkt brölt gengur fyrir sig á eyrinni. En þessi eini þarna mun lifa þetta af og ef fyrri viðskipti mín við þennan skríl hefðu ekki endað með svindli og svínaríi hefði ég bara sagt "nei og takk". Pólitíska sjálfboðapakkið fær hins vegar no mercy, ever.

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 17.10.2006 | 23:15:05 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff