»  off record  »  Dearly Departed
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Dearly Departed
Þriðjudagur, 17. október 2006

The Departed í hádeginu í gær. Alveg suddalega góð mynd sem tekur af öll tvímæli um að Scorsese á að halda sig á refilstigum (mean streets) frekkar en að vera að fokkast í períóðu myndum. Hann er einfaldlega lang bestur þegar hann er að díla við krimma og drullusokka. Þessi mynd jafnast kannski ekki alveg á við það allra besta sem hann hefur gert en hún er drullugóð. Besti krimmi sem ég hef séð lengi og það verður ekki af Scorsese tekið að hann kann að útfæra ofbeldi en hjá honum er það hrátt, óvænt, óþægilegt og nánast eðlilegt. Svona soldið eins og ofbeldi er in real life.

Aðalleikararnir eru í banastuði og hringsnúast í kringum Jack Nicholson sem er svolítið eins og mottan í stofunni hjá The Dude and really ties the film together. De Niro hefur löngum verið lykilmaður hjá Scorsese og einhvern tíma hefði hann nú sennilega verið fenginn í hlutverk Jacks. (Allt í lagi svo sem að halda því til haga að Scorsese var einhvern tíma spurður að því hvernig hann hefði farið að og hvern hann hefði fengið til að leika öll De Niro hlutverkin hefði Niro ekki verið til staðar. Sá stutti svaraði því að bragði að þá hefði hann bara leikið þetta sjálfur) De Niro er hins vegar búinn að vera ógeðslega lélegur og leiðinlegur í mörg ár. Hefur eiginlega ekki leikið neitt annað en sjálfan sig. Sama má svo sem segja um Jack, sem er alltaf Jack, en Scorsese hefur stjórn á ofleiknum og kallinn skilar þrusuflottum sækókrimma. Ray Winstone leikur hægri hönd hans og hefur ekkert fyrir því að vera töff og Leo DiCaprio (arftaki De Niro) glansar í gegnum sína rullu og Matt Damon stendur sig með miklum ágætum líka. Martin Sheen, Alec Baldwin og alls ekki síst Mark Whalberg klikka svo ekki í smærri rullum.

Skemmtilegt handrit, góð saga, kúl persónur, brilljant samtöl og myndin rígheldur frá fyrstu mínútum. Það er varla hægt að biðja um meira, nema þá kannski eins og eina Óskarsstyttu handa kallræflinum sem er endalaust sniðgenginn af þessum akademíusauðum.


| 0:06 |
komment

Ofleikur Jack er það sem gerir hann einfaldlega besta leikara sem sést hefur á hvíta tjaldinu.

Mig langar svo fáranlega mikið að sjá þessa mynd að það svíður...

Nr. 1 | arnór | 17.10.2006 | 1:22:21 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff