Ég lifi
Fimmtudagur, 05. október 2006
Fína BlueTop dráttartaugin sem ég keypti hjá Esso gerði ekki sitt gagn þar sem öngvir þakbitar eru í íbúðinni og því hvergi hægt að festa spottann. Kunni ekki við að taka þetta Omen stæl fram af svölunum vegna þess hversu pervisnir og þrasgjarnir nágrannarnir eru. Hefðu örugglega gert eitthvert vesen. Ég geri því orð gyðingsins forðum að mínum og lýsi því hér með yfir að Ég lifi! Hversu lengi skal ósagt látið en lífsviljinn fjarar hratt út þegar maður sér offramboðið á vitleysingum í kommentakerfinu. Leiðinda skríll að kafna úr heilagri vandlætingu og innantómum heilræðum (gerðu eitthvað sem þig hefur alltaf langað að gera. Hvaða þvæla er þetta?). Jokes on you. Again.