»  off record  »  Heimsyfirráð eða dauði!
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Heimsyfirráð eða dauði!
Mánudagur, 16. október 2006

punish.jpgÉg hélt nú að Fréttablaðið væri löngu búið að toppa og gæti ekki bætt við sig í lestri en samkvæmt nýju fjölmiðlakönnuninni má lengi potast upp á við. Þá er ekki síður ánægjulegt að sjá Moggann taka almennilega og tímabæra dýfu og auðvitað er það þrælkómískt að blaðið Blaðið skuli reyta lestur af stóra bróður en ekki erkifjandanum í Skaftahlíðinni.

Það er full ástæða til að óska SME og hans fólki til hamingju með árangurinn þó ég voni auðvitað að þetta skili sér í taugatitringi og slæmum móral í Hádegismóum. Blaðið var hreinn viðbjóður þegar SME-arinn tók við því en hann var ekki lengi að rífa það upp enda þekktur fyrir djöfulgang og þetta skilar honum vænum slatta af prósentum en breytir því ekki að FBL rúlar og Blaðið nær ekki enn þeim tölum sem Fréttablaðið skilaði á sokkabandsárum sínum. Það sótti jafnt og þétt í sig veðrið og gleðinn þegar við fórum yfir Moggann í fyrsta sinn var mögnuð. Svo mögnuð að hinn uppþurrkaði Gunnar Smári opnaði barinn á Einari Ben. og bauð í þönderpartí. Sá sigur verður þó aðeins unninn einu sinni, en sætur var hann.

Til þess að átta sig á ástæðum þess að blað sem hefur verið á toppnum í nokkur ár geti enn bætt við sig og farið yfir 90% í uppsafnaðri dekkun yfir vikuna þarf að skoða hlutina í sögulegu orsakasamhengi. Meðfædd hógværð mín kemur í veg fyrir að ég eigni sjálfum mér eitthvað af þessu þó stílfimari blaðamann sé vart að finna í þessum bransa. Stílgáfa er nefnilega lítils metin, bæði í launaumslögum og hjá lesendum. Fréttablaðið hefur hins vegar áður tekið stökk upp á við eftir að Jakob Bjarnar gekk til liðs við það þannig að það liggur í augum uppi að hann er enn kjölfestublaðamaður. Lesendur eru alltaf lesendur og þó Jakob sé iðinn við að draga saltvonda femínista að blaðinu þá skilar það sér engu að síður auknum lestri.

Dr. Gunni getur sjálfsagt líka gert tilkall til heiðursins enda hefur hann verið að brillera frá því hann kom á blaðið um svipað leyti og Jakob. Annars breyta ástæðurnar ekki öllu þó ég vilji halda kjölfestuþætti Jakobs til haga. Bottom lænið er að við rúlum.


First we take Köben. Then we take New York.


| 16:48 |
komment

Mér er næst að halda að maður lesi Fb. af gömlum vana en ekki ánægjunnar vegna. Ég verð alltaf jafn pirruð þegar ég fletti því og verð þes vísari að það gæti verið svo miklu, miklu skemmtilegra. Svona eins og það var þegar... já þegar við Tóti og feira skemmtilegt fólk sátum uppi á annarri hæð á Suðurgötunni og unnum við að skemmta okkur. Þá var blaðið gott og við skemmtileg.

Nr. 1 | Begga | 16.10.2006 | 18:08:13 | [+] |

Ertu að segja að ég sé orðinn leiðinlegur eftir að þú yfirgafst mig Bergljót Davíðsdóttir?

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 16.10.2006 | 19:03:15 | [+] |

Tóti minn. Þetta partý skal verða endurtekið, meira að segja með sumt af sama fólkinu innanborðs, en nú hinu megin við borðið.

Nr. 3 | Brynjólfur Þór | 16.10.2006 | 21:24:37 | [+] |

Það stefnir greinilega allt í það heillakallinn og ég mun drekka þína skál mín megin við borðið þegar þar að kemur.

Nr. 4 | Tóti sjálfur | 16.10.2006 | 21:37:03 | [+] |

Fjarri mér í helvíti Þórarinn að segja að þú sért leiðinlegur. Þú ert með skemmtilegri mönnum enda telstu til vina minna. Það segir allt sem segja þarf því ég nenni ekki að eiga leiðinlega vini. Hins vegar held ég að á Fb. séu ekki margir eins skemmtilegir og þú: það gerir útslagið. Held reyndar að þar séu of margir daprir, uppskrúfaðir og alvarlegir. Og Fréttablaðið ber dám af þeim sem skrifa það.
Bið að heilsa Ken
es. ég er byrjuða að vinna í því sem við töluðum um. Gengur vel.

Nr. 5 | Begga | 17.10.2006 | 2:06:13 | [+] |

Kúl Begga mín en mér finnst þú samt ekki hringja nógu oft í mig. Þarf til dæmis að ræða við þig um Ken en ég skila engri kveðju til hans. Hann er dauður ef ég hitti hann. Getum við ekki annars notað S&H til þess að gera út af við hann? EIR er lengur að reykja eina sígarettu en að draga svona stórfisk á land og slægja.

Nr. 6 | Tóti sjálfur | 17.10.2006 | 22:33:19 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff