Föstudagur, 27. október 2006
1971 árgangurinn úr MR er með reunion annað kvöld (reunion eru viðbjóður, Romy&Michelle segja allt sem segja þarf). Af þessu tilefni hefur bekkjarmyndin af F-bekknum og mynd af mér og Júlísi Schopka (nú tannlækni) og Magnúsi Þór Þorbergssyni (nú sprenglærðum dramatúrg) frá 1987 sloppið inn á einhvern vef sem ég vona að sé lokaður og læstur. Hélt ég væri búinn að uppræta og eyða öllum myndum af mér sem teknar voru fyrir 2000 þannig að það kom hressilega í bakið á mér þegar Sigga Tomm sýndi mér þetta í dag en fréttastjórinn tilheyrir þessum sama árgangi.
Hún hreinsaði samt sárin aðeins þegar hún sagði mér að ég væri "sætur" á myndinni en stráði svo umsvifalaust salti í þau þegar hún bætti við að "það hefði eitthvað getað orðið úr mér". Ég var 16 ára þegar þessi mynd var tekinn af mér og hafði þá tvö markmið, að giftast Önnu (hún var skiptinemi í USA þetta ár og fjarvera hennar kostaði mig andlegar vítiskvalir sem hafa enn ekki verið toppaðar) og verða drykkfelldur blaðamaður. Þessum takmörkum hefur báðum verið náð fyrir löngu þannig að ég er sáttur og fíla þennan sjúskaða, veðraða og síþreytta gaur sem ég er í dag miklu betur en beibífeisið sem hvorki reykti né drakk.
Ég mæti auðvitað ekki á morgun enda entist ég bara einn vetur í MR og beilaði á stærðfræðinni og Hitlersæsku andanum sem þar ríkti. Góður skóli samt og ég bý enn að the classical education, kann Lorelei utanbókar (hef haft ótrúlega marga fría drykki út úr Þjóðverjum fyrir það) á þýsku og íslensku og veit sitthvað um Grikkland hið forna og Rómarveldi en þeir gullaldartímar eru einu tímabilin í mannkynssögunni sem skipta einhverju máli ásamt frönsku byltingunni og WWII. Fór svo í MK og gat farið sofandi í gegnum allt annað árið þar vegna þess að allt námsefnið hafði verið coverað á fyrsta árinu í MR.
Heill þér Pallas Aþena!
| 23:28 |