Mánudagur, 02. október 2006
Ég get nú svo sem ekkert sagt að maður hafi misst saur af vonbrigðum yfir að KR skyldi klúðra bikarnum. Ef það er eitthvað sem maður hefur lært af því að halda með KR í rúm 30 ár þá er það að tapa. Launin eru hins vegar alvöru fögnuður sem kemur innst frá hjartanu þegar titlum er landað eftir áratuga eyðimerkurgöngu og miðað við allt sem á þessu liði hefur dunið í gegnum tíðina má vel við þetta ár una.
Annars er ég ekki dedikeraðari en svo að ég hef ekki farið á völlinn síðan Pétur Pétursson og Atli Eðvaldsson spiluðu fyrir KR og hinn ungi Óskar Hrafn djöflaðist eins og moðerfokker í vörninni. Maður hættir samt aldrei að fylgjast með og láta þetta sig varða en það hefur sjálfsagt meira með Vesturbæinn sjálfan að gera en þetta fótboltalið. 107 er eins og allir vita besti, fallegasti og friðsælasti bletturinn á jarðkringlunni þannig að KR hlýtur sjálfkrafa líka að vera best. Rétt eins og Melabúðin , Melaskóli og Háskólabíó.
Það sem gerir það svo lang skemmtilegast við að halda með KR er að stuðningsmenn allra annara liða geta endalaust sameinast um að hata KR. Það ber vitaskuld vott um kostulega minnimáttarkennd og magnaða firringu að skríll á öllum byggðum bólum í landinu skuli finna fró í því að pönkast á KR. Ber vott um mikinn styrk Vesturbæinga. Ég hef samt aldrei skilið þennan tendens fótboltabullna að hata andstæðinga sína en ég botna auðvitað hvorki í íþróttum né keppnisskapi. Hef t.d. aldrei getað annað en borðið virðingu fyrir Skagamönnum og FH þegar þau lið hafa rúllað þessum mótum upp. Engin skömm að því að tapa fyrir andstæðingi sem er betri.
Verð samt að viðurkenna að ég hef misst mig þegar FRAM er annars vegar og var sérstaklega í nöp við Guðmund Torfason fyrir margt löngu þegar hann gerði fátt annað en skora hjá KR en þetta var á þeim árum sem mínum mönnum var fyrirmunað að sigra þessa leiðinda blástakka úr Safamýrinni. Andúðin á FRAM hefur samt minnst með félagið sjálft að gera enda hefur það ekki getað rassgat árum saman og ætti best skilið að brenna að eilífu í annari deild. Það eru stuðningsmennirnir sem eru gersamlega óþolandi og annar eins söfnuður af sjálfumglöðu pakki hefur held ég bara aldrei rottað sig saman. Var þessi skríll allur í Versló?
| 21:26 |