Þriðjudagur, 31. október 2006
Mads Mikkelsen er skemmtilegur, Eva Green virkar skynsöm og down to earth. Not your typical Bond girl en veilurnar í heimssýn hennar bíða viðtalsins sem verður birt í Fréttablaðinu. Það er eitthvað svalt við Daniel Craig þó hann sé ekki beint töff í eigin persónu en næs er hann.
Ég sat einn að Dananum en við Jakob (ekki Bjarnar) frá Verdens Gang deildum Evu. Það gekk smurt og við fundum taktinn um leið og það var eins og við værum teymi. Erum ekki frá því að það sé best að vera tveir í svona junketum. Það getur verið erfitt að vera einn og það er fínt að vera með annan á kantinum (sérstaklega þegar ekki er um beinan samkeppnisaðila að ræða). Svona ef maður skyldi þurfa að hugsa. Það er öllu verra þegar blaðamenn eru orðnir 4 eða fleiri á viðmælanda en við fengum tvo Svía í hausinn þegar það kom að Craig. Við félagarnir rændum samt því viðtali einfaldlega enda sænsku kvikindin vart talandi á ensku og komu með bjánalegar spurningar. Stelpan minnti mig á asísku blaðamennina í Cannes en þeir eru alltaf í ruglinu.
Fann nokkra bari og skemmtilegar búðir í "old town" sem er of sænskur til að þola samanburð við OLD TOWN í Sin City. Hér dettur allt niður upp úr 11 og það er skelfing að horfa upp á alla staði reyklausa. Fáránlegt að gestir veitingahúsa verði að norpa fyrir utan með retturnar. Reykjavík deyr þegar þessi fasismi tekur gildi þar. Jakob (ekki Bjarnar) segir mér að þetta venjist ótrúlega fljótt en ég hef mínar efasemdir. Ekkert að gera annað en hætta að reykja og þá um leið að hætta að stunda þessa súru staði.
Já. Sá 20 mínútur úr Casino Royale í morgun. Þær mínútur gefa ekki fyrirheit um neitt annað en flottustu Bond mynd síðan From Russia With Love.
| 16:09 |