Sunnudagur, 08. október 2006
Þar sem öflugir verkir og sterk lyf mætast verður til dásamlegt no man´s land, handanheimur, andaheimur og þó maður sé ansi ringlaður eftir stutta viðdvöl þar þá er ekki hægt að segja annað en að þetta séu gefandi tripp. Maður gæti hreinlega vanist þessu en ég held samt að það sé ekkert vit í þessu nema sársaukinn sé til staðar. Ég varð amk aldrei var við það að pillukerlingarnar sem ég hef verið í meðferðum með hafi verið að upplifa neitt spennandi eða gefandi á sínum læknadópstrippum. Ég er hins vegar búinn að hlýða á visku lítillar, loðinnar geimveru sem heitir Gordon Shumway og er með nef sem minnir helst á delann á John Holmes í hálfri reisn. Alveg óvitlaus samt.
Eftir þessa helgi skil ég líka betur hvað fólk er að meina þegar það segir að það sé fólgið öryggi í því að eiga börn. Hef nú aldrei séð praktísku hliðina á því brölti og heldur aldrei beinlínis ætlast til þess að sá hagnað af því að eiga börn, annan en þennan sem ekki verður metinn til fjár. En blessuð skinnin mín hugsuðu vel um gamla manninn um helgina og gerðu allar þrautir bærilegri á milli þess sem þau horfðu á gömul ALF season. Það er í það minnsta á hreinu að ef maður á börn þarfnast maður hvorki vina né maka. Priceless.
| 16:05 |